Kastljós kvöldsins......

Aldrei hefur Davíð Oddsson verið í miklum metum hjá mér, hvorki sem stjórnmálamaður né embættismaður, en maðurinn verður að njóta sannmælis og það væri ekki sanngjarnt annað en að segja að hann hreinlega átti kastljósiðí kvöld og það alveg skuldlaust.  Sigmar Guðmundsson var dónalegur, spurði (sjálfsagt hefur honum sjálfum þótt spurningarnar góðar) dónalegra spurninga,  greip ítrekað frammí fyrir viðmælanda sínum þegar hann reyndi að svara spurningum, sem oftar voru ekki mönnum bjóðandi og reyndar fór svo að Davíð setti setti ofan í við hann fyrir ÓVANDAÐA OG ÓGAGNRÝNA fréttamennsku, þetta er einmitt málið að blaða- og fréttamenn eru orðnir svo "heiladauðir" og "gagnrýnislausir" að þeir bara birta "fréttir" algjörlega "gerilsneiddar" og fyrirfram matreiddar.  Segir þetta okkur ekki að fjölmiðlarnir þurfa á því að halda að fara í smá "naflaskoðun".

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, ég get varla verið meira sammála þér núna eins og oft áður, því Davíð hefur alltaf verið í mínum huga þegar hann var forsætisráðherra einskonar "einræðisherra" því miður, og það er rétt hjá þér kæri bloggvinur að maðurinn (Davíð) á að njóta sannmælis. Það er spurning hvort fréttarmenska á Íslandi þurfi bara ekki að lenda í einskonar hruni (bankahruni).

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 25.2.2009 kl. 00:03

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jóhann.

Fréttamenn eru að verða eins og Gróa á Leiti og sem aldrei fyrr voru nú spurningarnar þess efnis hjá Sigmari hinum háæruverðuga í kvöld.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.2.2009 kl. 01:35

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér fannst Davíð var dónalegur líka, og reyndar alveg búin að vera.  Legg til að þessi maður fari að hvíla sig og leyfa sprækara fólki að spreyta sig á hinum mikla vanda sem við stöndum frammi fyrir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2009 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband