FINNST MÖNNUM/KONUM VIRKILEGA Í LAGI AÐ BERJAST GEGN AUKINNI ATVINNU OG GJALDEYRISSKAPANDI STÖRFUM????

Mig setti alveg hljóðan í gærkvöldi þegar ég horfði á tíufréttirnar á RÚV í gærkvöldi, af öllu þá kemur þessi talsmaður herstöðvaandstæðinga, Stefán Pálsson og lýsir sig, fyrir hönd þessara samtaka, andvígan áformum ECA um fyrirhugaða viðhalds og æfingastöð fyrir NATO ríki á Keflavíkurflugvelli.  Þarna er um að ræða gríðarlega mikið tækifæri fyrir okkur Íslendinga en þetta fólk sem er greinilega ekki alveg vel stemmt andlega, getur ekki með nokkru móti séð fyrir sér að við eigum að geta bjargað okkur án aðkomu AGS eða með einhverju öðru betli, varð að vera á móti þessu, nú þegar Bandaríski herinn er farinn þá verður þetta lið að finna sér eitthvað til að mótmæla til þess að það geti haldið styrkjum frá því opinbera.  Einhver sú aumkunarverðasta samlíking, sem ég hef nokkurn tíma heyrt koma frá umræddum Stefáni Pálssyni í gærkvöldi, en þar talaði hann um að Ísland gæti orðið  eitthvert "HENTIFÁNARÍKI" fyrir "hermang" eins og hentifánaríki fyrir skip, hvernig í ósköpunum mannræfillinn hefur komið niður á þessa samlíkingu er mér gjörsamlega hulin ráðgáta því þetta tvennt á alls ekkert sameiginlegt og sýnir best málefnafátækt hans og það að þessu liði er alveg sama þótt það fari AÐEINS Í KRINGUM SANNLEIKANN þeim er ekkert heilagt.
mbl.is Gríðarlegur vöxtur framundan á Ásbrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður hefði hrokkið við ef þeir hefðu ekki gert þetta blessaðir???? hernámsanstæðingarnir!!!!!!/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 15.10.2009 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband