HVAÐ VARÐ UM ÞESSA "SKJALDBORG" SEM ÁTTI AÐ REISA UM HEIMILIN?????????

Erindum talsmanns neytenda er ekki einu sinni svarað af "ríkisstjórn fólksins".  Það verður að fá úr því skorið hvort það hafi verið löglegur gjörningur að veita lán með tengingu við erlenda gjalmiðla en í þessu hafa stjórnvöld dregið lappirnar fram úr hófi enda eru hagsmunir ríkisin gífurlega miklir í þessu máli.  Fari svo að, að þetta mál fari fyrir dómstóla og lánin verði dæmd ólögleg, verða eignir bankanna mun minni og þar sem þeir eru í eigu ríkisins má segja að "ríkisstjórn fólksins" verði í verulega djúpum sk.., eins og hún hefur verið í allan sinn tíma.  Það er nokkuð ljóst að þessi SKJADBORG sem átti að reisa um heimilin er að verða að FLÓTTAMANNABÚÐUM.
mbl.is Lögbann á afborganir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Það er alveg hreinn viðbjóður hvernig þessi stjórn sem kennir sig við lítilmagann í þjóðfélaginu hagar sér gagnvart þeim, það er engin skjaldborg nema fyrir glæpamenn og þá sem sitja að kjötkötlunum og þeirra vinum og vandamönnum og öllum vel tengdum þeim.   þetta fólk  ætti að sjá sóma sinn í því að taka pokann sinn og láta sig hverfa, það yrði þvílík landhreinsun.

Hulda Haraldsdóttir, 22.10.2009 kl. 22:02

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er nokkuð ljóst að þessi SKJADBORG sem átti að reisa um heimilin er að verða að FLÓTTAMANNABÚÐUM.

Já og flóttamannabúðum sem eru að tæmast, vegna þess að fólkið fer í burtu.  Báðir synir mínir sem eftir eru, eru á leið til Noregs með börnin sín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.10.2009 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband