ÞVÍLÍKUR BULLARI!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Var að enda við að horfa á "Silfur Egils", sem má nú að mörgu leiti muna fífil sinn fegurri, en skítt með það.  Það sem stakk mig nú einna mest var framganga og framkoma Kristrúnar Heimisdóttur og hvernig hún að mestu leiti reyndi að einoka þáttinn.  Hún má reyndar eiga það að hún er "flugmælsk" og það getur enginn tekið það af henni að hún er MJÖG greind.  En því miður er það mjög algengt með vissan hóp manna og kvenna að það er reynt að kjafta niður alla gagnrýni og þá reynt að "yfirtaka" umræðuþætti með því að hleypa mótaðilanum bara ekkert að.  Þetta var sérstaklega áberandi í þættinum í dag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Rétt hjá þér, hún ekki bara reyndi - heldur tókst henni á grófan hátt að taka yfir sem stjórnandi þáttarins og hún "kjaftaði niður alla gagnrýni með endarlausu bulli" - mega fyndið að fólk skuli kjósa Samspillinguna.  Eina sem FL-okkurinn er góður í er "lýðskrum, blekkingar & lygar" - sömu hæfileikar og útrásar skúrkarnir okkar bjugu yfir.

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 8.11.2009 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband