Bloggfærslur mánaðarins, september 2018

Föstudagsgrín

Jón og Gunna voru búin að vera gift MJÖÖÖÖG lengi, enda voru þau komin vel á áttræðisaldur.  Allt hafði gengið mjög vel og bæði höfðu þau verið mjög heilsuhraust í gegnum tíðina svo allt virtist vera eins og blómstrið eina.  En Jón var farinn að hafa áhyggjur af því að Gunna væri eitthvað farin að heyra illa, en hann var mjög tillitssamur og vildi ekki „særa" Gunnu með því að hafa orð á þessum grunsemdum sínum við hana.  Þess í stað fékk hann tíma hjá heimilislækninum þeirra og ræddi þetta vandamál við hann, hann hafði verið læknirinn þeirra í áratugi og Jón leit meira á hann sem gamlan heimilisvin.  Heimilislækninum fannst þetta líka alvarlegt mál en var Jóni alveg sammála um það að vera ekki að gera mikið úr þessu við Gunnu en Jón skyldi nú fyrst gera „prufu" á þessu og svo skyldu þeir gera eitthvað í málinu.  Hann sagði Jóni alveg af pottþéttri aðferð til að sannprófa þetta; fyrst skyldi hann vera í 40 feta fjarlægð frá henni og þá að spyrja að einhverju - ef hann fengi engin viðbrögð skyldi hann færa sig í 30 feta fjarlægð frá henni og spyrja hana - ef hann fengi engin viðbrögð skyldi hann færa sig í 20 feta fjarlægð og spyrja  - ef þá yrðu engin viðbrögð skyldi hann færa sig í 10 feta fjarlægð og spyrja - ef ekki yrðu nein viðbrögð þá væri vandamálið nokkuð alvarlegt og hann skyldi þá fara alveg upp að henni og spyrja.  Jón þakkaði lækninum fyrir og fór heim ákveðinn í að reyna þetta við fyrsta tækifæri.  En tækifærið kom fyrr en hann grunaði, þegar hann kom heim var Gunna að ljúka við að elda kvöldmatinn og Jón ákvað að prófa það sem læknirinn hafði ráðlagt honum.  Hann fór inn og lokaði útihurðinni og gekk inn þegar hann var í u.þ.b 40 feta fjarlægð frá Gunnu spurði hann:

Hvað er í matinn"????

Engin viðbrögð svo hann færði sig til þar til hann var í c.a 30 feta fjarlægð og spurði aftur:

          „Hvað er í matinn"???

Engin viðbrögð svo hann gekk nær henni þar til hann var í c.a 20 feta fjarlægð frá henni og spurði aftur:

           „Hvað er í matinn"???

Enn komu engin viðbrögð svo Jón færði sig nær henni og þegar hann áætlaði að  hann væri í c.a 10 feta fjarlægð frá henni spurði hann einu sinni enn:

            „Hvað er í matinn"???

Enn voru engin viðbrögð og Jón var orðinn verulega áhyggjufullur en hann ákvað að klára tilraunina og gekk nú alveg upp að Gunnu og spurði enn og aftur:

             „Hvað er í matinn"???

            „Jón í FIMMTA skiptið, það er KJÚKLINGUR" svaraði hún.


ENN ER FÖLSUNUM BEITT, VARÐANDI LAUN Í LANDINU..........

Þarna sér maður loksins minnst á MIÐGILDIÐ, en þegar það er tekið þá er það umtalsvert LÆGRA en MEÐALTALIÐ en MIÐGILDIÐ var 618.000 en aftur á móti var MEÐALTALIÐ 706.000.  Í þessari frétt kemur fram að 10% launamanna á almennum markað voru með MINNA en 400.000 krónur í heildarmánaðarlaun en aftur á móti voru 12% launamanna voru með laun YFIR 1.000.000 króna á mánuði og þetta er helsta ástæða þess að "meðaltalið" verður svona KOLRUGLAÐÍ EINNI TÖLFRÆÐIBÓK LAS ÉG AÐ TIL VÆRI ÞRENNS KONAR LYGI; ÞAÐ ER LYGI, HAUGALYGI OG TÖLFRÆÐI.  Þarna er tölfræðinni beitt kinnroðalaust.......


mbl.is Heildarlaun að meðaltali 706 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG HLUTABRÉFIN Í ICELANDAIR HÆKKA ENDA ER ÞEIRRA STAÐA EKKERT SLÆM

Eins dauði er víst annars brauð.  En það er nú ekki búið að gefa út "dánarvottorð" fyrir WOW air og aldrei að vita nema Skúla takist að bjarga fyrirtækinu fyrir horn þó ég telji það frekar ólíklegt það er aldrei að vita nema lífeyrissjóðirnir séu með eitthvert fjármagn sem þeir vilja "gambla með"?


mbl.is Veiking krónunnar tengist líklega stöðu WOW
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÞETTA LÉLGUR BRANDARI EÐA HVAÐ?????????

Heldur stjórnarliðið að 4% hækkun á persónuafslætti sé eitthvað almennilegt innlegg í komandi kjaraviðræður?????


mbl.is Persónuafsláttur og barnabætur hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JÚ SVO SANNARLEGA ER HÆGT AÐ FUNDA - EN HVER ER TILGANGURINN??

Það er hvort eð er ekkert hægt að gera.  VITA STJÓRNVÖLD EKKI AÐ ÞAU HAFA SAMÞYKKT LÖG OG REGLUGERÐIR FRÁ ESB, ÞESS EFNIS, AÐ HVERS KONAR RÍKISAÐSTOÐ VIÐ EINKAFYRIRTÆKI ERU MEÐ ÖLLU ÓHEIMIL?  En þessi staða sem WOW er í er alls ekki neitt alvarleg fyrir okkur.  Þetta fyrirtæki skilar frekar litlu til þjóðfélagsins það greiðir mjög litla sem enga katta hér á landi, flestir starfsmennirnir eru erlendir einhverjir eru Íslenskir og greiða hér skatta og skyldur.  Og ef fyrirtækið fer á hausinn, þá fara farþegar þess til einhvers annars flugfélags.  FÓLK HÆTTIR EKKI AÐ FLJÚGA ÞÓTT WOW AIR FARI Á HAUSINN.  ÞAÐ ER FREKAR LÍTIÐ SEM HEITIR: "TOO BIG TO FAIL"........


mbl.is Funduðu um stöðu WOW air
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VÆRI TIL MIKILS MÆLST AÐ HÚN KÆMI EINHVERNTÍMA MEÐ EINHVER RÖK FYRIR BULLINU Í SÉR????

Það er alveg með ólíkindum hvað þessi manneskja virðist komast upp með að senda frá sér og alla vitleysuna, sem hún lætur frá sér fara, birta fjölmiðlar athugasemdalaust.  Það hefur komið fram hver fræðimaðurinn á fætur öðrum og lýst því hvernig krónan BJARGAÐI okkur út úr HRUNINU og svo hefur því verið margsinnis lýst yfir að ef við hefðum verið svo ólánsöm að vera komin með EVRU í HRUNINU ÞÁ HEFÐI LANDIÐ EINFALDLEGA FARIÐ Á HAUSINN.  Ég sé ekki að hún nefni neins staðar hver þessi "ábati" okkar sé af EES samningnum?  Flestir INNLIMUNARSINNAR tala um aðganginn að 500 milljóna manna markaði en eitthvað kemur þessi 500 milljóna manna markaður til með að minnka þegar Bretar með sínar 64 milljónir yfirgefa ESB og þangað fer fjórðungur af allri sölu okkar sem fer til ESB.  Hver verður ávinningurinn þá??????


mbl.is Væri „gríðarlegt tjón“ að ganga úr EES
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKÁRRA VÆRI ÞAÐ - HANN VAR JÚ SETTUR Í ÞETTA RÁÐUNEYTI TIL AÐ LÆKKA VEIÐIGJÖLDIN

Það vakti FURÐU margra að Kristján Þór Júlíusson skyldi vera valinn Sjávarútvegs- og Landbúnaðarráðherra, því ekki lá neitt eftir hann þegar hann var í Heilbrigðisráðuneytinu í ríkisstjórninni á undan.  En margir nefndu það að hann væri "varðhundur" stórútgerðanna og þá sérstaklega Samherja hf og nú er þessi orðrómur  staðfestur.  Það er alveg merkilegt að það er búið að þrátta um kvótakerfið í áratugi og það er lengi búið að þrátta um hvað ÚTGERÐIN EIGI AÐ BORGA FYRIR AÐGANGINN AÐ AUÐLINDINNI.  En að sjálfsögðu fæst engin niðurstaða, einfaldlega vegna þess að um leið og þetta er nefnt FARA ALLIR BEINUSTU LEIÐ OFAN Í SKOTGRAFIRNAR OG ÞÁ FER EKKI FRAM NEIN SKYNSAMLEG EÐA VITRÆN UMRÆÐA UM ÞESSI MÁL.  Enda hefur tekist á þessum áratugum, sem þessi mál hafa verið á döfinni, AÐ GERA ÞETTA EINFALDA MÁL ALVEG ÓTRÚLEGA FLÓKIÐ OG UM ÞETTA HEFUR ALDREI ORÐIÐ NEINN SÁTT OG VERÐUR EKKI HELDUR NÚNA.  Og svo er annað mál ég veit ekki til þess að það sé neitt verið að tala um auðlindagjöld og sameign þjóðarinnar á auðlindum nema í sambandi við fiskveiðiauðlindina?  Greiðir Landsvirkjun eitthvað fyrir virkjanirnar, greiðir ferðaþjónustan eitthvað fyrir notkun á landinu og fleira og fleira??????


mbl.is Hyggur á nýtt frumvarp um veiðigjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKÝRINGIN ER EINFÖLD - VERÐLAGIÐ ER OF HÁTT.....

Það sér það hver heilvita maður AÐ ÞEGAR ÞAÐ ER ORÐIÐ UMTALSVERT DÝRARA AÐ SKREPPA TIL AKUREYRAR EN TIL LONDON, ÞÁ ER EITTHVAÐ MIKIÐ AÐ........


mbl.is Umtalsvert færri fljúga innanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ÞESSI FERJA NOKKURN TÍMA EFTIR AÐ NÝTAST AÐ FULLU?????

Það er alveg sama hvað er, það hefur ALLT gengið á "afturfótunum" í sambandi við Landeyjahöfn og nú tekur "ferjan" bara við.  Svo þegar menn héldu að hönnun ferjunnar væri lokið, þá var verið að gera hinar og þessar "breytingar" á henni ALLAN smíðatímann.  Sem kemur niður á sjóhæfni hennar og fleira eins og raunin varð með þann Herjólf sem er í gangi núna.  ÞAÐ KÆMI EKKERT Á ÓVART ÞÓTT ÞESSI FERJA YRÐI MEIRIHÁTTAR GALLAGRIPUR EINS OG HÖFNIN ......


mbl.is Mörg handtök eftir í Herjólfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband