Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2019

FYLGIST MANNESKJAN EKKI MEÐ? - Í ORKUPAKKA FJÖGUR ER ÞESSI FYRIRVARI SLEGINN ÚT AF BORÐINU.

Þannig að það er ekkert eftir til að setja í þjóðaratkvæðagreiðslu og þar af leiðandi er þetta ekkert til að hafa áhyggjur af.  En hún ætti að hafa áhyggjur af öllum þeim peningum sem hún ætlar að "ausa" í þessi loftlagsmál, þetta er eins og að ausa í baðkar, sem tappinn hefur verið tekinn úr.  Því þess hlýnun er ekkert af mannavöldum.  Sums staðar hefur hlýnað eins og til dæmis á norðurslóðum.  Þetta á sér ósköp eðlilegar skýringar, þar sem segulpóllinn er farinn á flakk, með öðrum orðum það standa yfir PÓLSKIPTI SEGULPÓLLINN ER NÚNA Í SÍBERÍU OG ÞAR ER FIMBULKULDI NÚNA OG JÖKLAR BYRJAÐIR AÐ MYNDAST.  Það er talið að Segulpóllinn endi í Indlandshafi.  Þá verður straumur flóttamanna frá ríkjum Asíu, að flýja kuldann þar og sum svæðin verða hreinlega óbyggileg.  Þá verða allir MILLJARÐARNIR sem verður búið að "HENDA" í aðgerðir vegna "hlýnunar af mannavöldum" ekki til staðar vegna vandans sem skapast vegna flóttamanna......


mbl.is Útilokar ekki þjóðaratkvæði um sæstreng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER BÚIÐ AÐ VERA LJÓST Í MÖRG ÁR EN HVAÐ VELDUR ÞVÍ AÐ ALLT Í EINU NÚNA ÞARF AÐ GERA EITTHVAÐ???

Getur það verið að þegar "elítan" fékk að finna fyrir þessu á "eigin skinni", hafi allt í einu verið brýn þörf á einhverjum aðgerðum.  Það var kannski "tilviljun" en strax eftir að viðtal birtist við bróður Gunnarsstaða Móra, þar sem hann lýsti því að "erlendur auðmaður" hefði bara komið eins og þjófur að nóttu og keypt land, sem hann átti sem sameign með öðrum bæ í nágreni við Gunnarsstaði.  Síðan þetta viðtal kom hafa bæði Forsætisráðherra og Sveitastjórnaráðherra komið fram á sjónarsviðið og tjáð sig um þessi mál.  En fram að þessu atviki hafði þetta jarðamál hlotið afar litla athygli hjá ráðmönnum þjóðarinnar.  En það er vonandi að eitthvað af viti verði gert í þessu núna, þegar þetta er farið að hafa áhrif á "elítuna".......


mbl.is Ítarlegri kröfur í nágrannalöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AÐ SJÁLFSÖGÐU EKKI ÞAÐ ERU SKATTGREIÐENDUR SEM BORGA - SKIPTIR "ENGU" EINASTA MÁLI

ISAVIA hefur hingað til hagað sér eins og fyrirtækið sé hafið yfir lög og reglu á Íslandi, enda enginn sem virðist hafa neitt með fyrirtækið að gera og ekkert boðvald yfir gjörðum þess að einu eða neinu leiti.  Í skjóli þessa hefur fyrirtækið "troðið" á rétti fyrirtækja, sem starfa í Flugstöðinni og víðar, svo ekki sé minnst á að markmið og stefna fyrirtækisins virðist taka breytingum eftir því hvernig vindar blása.  Fyrirtækið á að sjá um flugvelli landsins en nú virðist vera að aðalstefna fyrirtækisins sé hámörkun HAGNAÐAR og enginn segir neitt.  Málið með þessa flugvél er alveg kostulegt og er efni í heila bók.  Ég held að ég geti fullyrt það að EKKERT EINKAFYRIRTÆKI HEFÐI LEYFT SÉR AÐ GANGA FRAM MEÐ ÞESSUM HÆTTI sem ISAVIA hefur gert í þessu máli og svo bíta þeir hausinn af skömminni með því að lýsa því yfir að dómurinn sé einfaldlega RANGUR og alveg greinilegt að það átti bara að hunsa hann eins og þeir gerðu í "Kaffitársmálinu" (man einhver eftir því?)......


mbl.is Sér ekki eftir ákvörðunum Isavia
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ÆTTI AÐ VERÐA TIL ÞESS AÐ EINHVERJIR FARI AÐ HUGSA SINN GANG

Segir þetta ekki nokkuð mikið um "orku(jóla)pakkana" frá ESB?  Dettur engum í hug að skoða orkupakka fjögur í samhengi við orkupakka þrjú?  Í orkupakka fjögur er fyrirvari Utanríkisraðherra, sleginn út af borðinu í einum vettvangi og ætla menn samt að styðja þingsályktunartillöguna um orkupakka þrjú?  Eftir því sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins sögðu, þá var þessi fyrirvari forsenda þess að þeir studdu málið.  Skyldi vera einhver önnur forsenda fyrir stuðningnum???????????


mbl.is Úrsögn vegna 3. orkupakkans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Þegar hinn eini sanni skörungur Halldóra Bjarnadóttir varð 100 ára, kom til hennar fréttamaður útvarps og tók við hana viðtal.  Það kom fréttamanninum verulega á óvart hvað hin aldna kona var vel að sér um allt sem var að gerast í þjóðfélaginu og fannst honum að margir henni yngri mættu vera ánægðir með að búa yfir hennar andlegu heilsu.  Fréttamaðurinn endaði viðtalið við hana á þeim orðum að hann ætlaði að koma til hennar í heimsókn þegar hún yrði 150 ára. 

Þá varð þögn í smá stund en svo sagði hún: "Hu, þú verður löngu dauður".


AUGLJÓST MÁL FYRIR ÞÁ SEM VILJA SJÁ - SUMUM ER BARA EKKI VIÐBJARGANDI

Þetta er algjörlega á hreinu ef menn bara skoða orkupakka þrjú almennilega, þá er ekki um neinn vafi (þessi fyrirvari, það má deila um hvort hann heldur eða ekki þó að flestir vilji meina að hann sé settur til að "friða" einhverja efasemdar(þing)menn).  Og svo ef orkupakki fjögur er skoðaður, þá kemur í ljós að þessi fyrirvari er SKOTINN NIÐUR, strax í upphafi.  Þessi ÓSIÐUR mann að "túlka" stjórnarskrána út og suður, er ekkert annað en "klám" og "sóðaskapur" sem "fræðimenn" og aðrir verða að láta af, því stjórnarskráin er ekkert til að leika sér með.......


mbl.is Orkupakkinn takmörkun á fullveldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞARNA SÝNDU PÍRATAR BARA SITT "RÉTTA" ANDLIT...........

Það hvernig Birgitta var, þegar hún var í Pírötunum, er þekkt hún var ekki allra og það var þannig að Helgi Hrafn var "hrakinn" af þingi vegna ósættis við Birgittu Jónsdóttur en hann kom strax til baka, þegar hún fór.  Ætli þarna sé ekki komin ástæðan fyrir því hversu Helgi Hrafn var harðorður í garð Birgittu á þessum fundi.  En þessi fundur sýndi bara svo ekki verður um villst að Píratar eru síður en svo einhver lýðræðisleg hreyfing og ekki er hægt að sjá að málin séu mikið uppi á borði (það virðist vera mun meira pláss undir borðinu).  Var þessari upptöku "lekið í fjölmiðla" og hver var tilgangurinn?????????


mbl.is „Ég upplifi ákveðið mannorðsmorð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERS VEGNA VÆRI ÞAÐ - EKKI ER ÞAÐ Í ÞÁGU BRETA.......

Það er bara komið í ljós að BREXIT hefur mun neikvæðari áhrif á ESB en Breta.  En ESB vill ekki viðurkenna það opinberlega, enda hrynur við það allur þeirra málflutningur.  ESB vill að sjálfsögðu halda Bretum inni sem lengst, því það eru svo gríðarlegar fjárhæðir sem Bretar greiða til sambandsins og ríki ESB hafa svo gríðarlega mikil viðskipti við Breta að það er vandséð hvort ESB lifir það hreinlega af ef Bretar yfirgefa sambandið......


mbl.is Tilbúin að veita Bretum lengri frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MANNRÉTTINDI ERU Í MUN MEIRI ÓLESTRI HÉR ÁLANDI EN Á FILIPPSEYJUM

Þar ber náttúrulega að FÓSTUREYÐINGAR ERU LEYFÐAR TIL LOKA 22 VIKU MEÐGÖNGU OG HÉR Á LANDI HÖFUM VIÐ FORÆTISRÁÐHERRA, SEM VILL ENGIN TÍMAMÖRK Á FÓSTUREYÐINGUM.  Gulli og co ættu að huga að mannréttindum hér á landi, áður en er farið að BELGJA sig út, vegna mannréttinda erlendis.  En einhvern vegin þarf þetta lið að vinna á MINNIMÁTTARKENNDINNI sem hrjáir það en það er óþarfi að láta hana bitna á þjóðinni, sem þeir eiga að vera að vinna fyrir.......


mbl.is Filippseyjar slíti tengslin við Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ KEMST BARA ALLT EFNAHAGSLÍFIÐ Í LAG AFTUR - ER ÞAÐ EKKI??

Er ekki alltaf verið að tala um að gjaldrot WOW, hafi verið þess valdandi að allt fór hérna á hliðina? Mikill samdráttur í komu ferðamanna og stórminnkuð sala í Íslenskri framleiðslu á erlendum mörkuðum.  Allt má víst rekja til gjaldþrots WOW.  En hefur verðlagning Íslenskrar ferðaþjónustu ekkert með þetta að gera?  Hvernig getur einn samlokuræfill kostað 2.000 krónur og ein vatnsflaska kostað 400 krónur og þetta eru ekki einu dæmin um okrið í sjoppum landsins........


mbl.is Bandarískir kaupendur að eignum WOW?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband