ÞETTA ÆTTI AÐ VERÐA TIL ÞESS AÐ EINHVERJIR FARI AÐ HUGSA SINN GANG

Segir þetta ekki nokkuð mikið um "orku(jóla)pakkana" frá ESB?  Dettur engum í hug að skoða orkupakka fjögur í samhengi við orkupakka þrjú?  Í orkupakka fjögur er fyrirvari Utanríkisraðherra, sleginn út af borðinu í einum vettvangi og ætla menn samt að styðja þingsályktunartillöguna um orkupakka þrjú?  Eftir því sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins sögðu, þá var þessi fyrirvari forsenda þess að þeir studdu málið.  Skyldi vera einhver önnur forsenda fyrir stuðningnum???????????


mbl.is Úrsögn vegna 3. orkupakkans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Stóra spurningin er þessi Hvað höfum við að gera í EES???  Ef stjórnvöld halda áfram að þjösnast með þennan pakka í gegnum þingið mun upp rísa krafa um Ice-exit, krafa um að við segðum okkur úr EES. Sú hreyfing sem þá færi af stað mundi hafa veruleg áhrif á næstu Alþingiskosningar.

Tómas Ibsen Halldórsson, 19.7.2019 kl. 12:59

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

EES samningurinn, var góður fyrir okkur á sínum tíma en í dag er hann ekkert annað en bölvaður bastarður og ætti að segja honum upp strax.  Kæmi upp hreyfing, sem hefði að markmiði að segja EES samningnum upp og að afturkalla ESB umsóknina yrði ég fljótur að stökkva á vagninn.

Jóhann Elíasson, 19.7.2019 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband