Bloggfærslur mánaðarins, maí 2020

NEYSLURÝMI => LÖGLEIÐING EITURLYFJA...........

Því miður held ég að Alþingismenn, sem samþykktu frumvarp Svandísar Svavarsdóttur um LÖG UM NEYSLURÝMI, hafi ekki hugsað málið til enda.  Það er nefnilega þannig að ef er sagt A, þá kemur að því að það verði að segja B, sem þýðir ekkert annað en að með því að setja NEYSLURÝMI í lög, þá kemur fram "þrýstingur" þess efnis að fíkniefnaneytendur sem eru á leið í "NEYSLURÝMIN",  verði ekki "ólöglegir" að vera með fíkniefni á sér, sem þeir ætla að nota í NEYSLURÝMINU.  Nú get ég ekki betur séð en að nú þurfi Þingmenn, sem samþykktu þennan ósóma, að fara í alvarlega "naflaskoðun" og íhuga það vel HVAÐ ÞEIR ERU AÐ GERA Á ÞINGI.................


HÚN TALAÐI MIKIÐ, SAGÐI LÍTIÐ OG "SKAUTAÐI" LIÐLEGA FRAMHJÁ SANNLEIKANUM - MEÐ ÖÐRUM ORÐUM BULLAÐI HEILMIKIÐ

Og fyrir hvað var hún eiginlega að þakka WHO?  Kannski fyrir það að halda upplýsingunum um þennan heimsfaraldur frá heimsbyggðinni og bera þannig ábyrgð á hundruð þúsunda dauðsalla á heimsvísu?  Svo minntist hún ekki á það einu orði, AÐ ÞAÐ VAR EINKAFYRIRTÆKI SEM ÁTTI STÓRAN ÞÁTT Í ÞEIM GÓÐA ÁRANGRI, SEM ÍSLAND NÁÐI Í BARÁTTUNNI VIÐ COVID-19 VEIRUNA.........


mbl.is Svandís þakkaði WHO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÞRÝSTINGURINN FRÁ SAMTÖKUM FERÐAÞJÓNUSTUNNAR SVO MIKILL AÐ ÞAÐ SÉ MAT RÍKISSTJÓRNARINNAR AÐ NÚ SÉ EKKI LENGUR "ÞÖRF" Á AÐ FARA AÐ RÁÐLEGGINGUM VÍSINDAMANNA???

Þessi árangur, sem Ísland hefur náð í baráttunni við covid-19 veiruna, er eftirtektarverður en nú er pólitíkin tekin við og það er eins og við manninn mælt að þá stefnir í að þessum góða árangri verði "KLÚÐRAÐ" á ljóshraða með því að opna landið fyrir ferðamönnum þann 15 júní næstkomandi........


mbl.is Ferðamenn eyddu 284 milljörðum hér í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER VERIÐ AÐ "SVERMA FYRIR" BÓKMENNTAVERÐLAUNUM NÓBELS????

Það þarf nú engan speking til að segja það að samdrátturinn kemur til með að verða mun meiri en 9,2% á árinu hann verður aldrei minni en 15-20% og er það varlega áætlað.  Ef við hugsum bara svolítið rökrænt þá hlýtur hver heilvita maður að sjá það að ferðamannaiðnaðurinn verður ENGINN það sem eftir lifir af þessu ári.  Það getur verið að hingað slæðist einn og einn ferðamaður en hér verður engin atvinnugrein sem heitir ferðamannaiðnaður út þetta ár og við megum bara þakka fyrir ef við fáum hingað 500.000 ferðamenn næsta sumar (sumarið 2021)  Mér finnst ansi "varlega" spáð með að atvinnuleysið verði bara 9,6% að meðaltali þetta ár.  Mér er alltaf svolítið illa við þessi MEÐALTÖL, því meðaltal segir afskaplega lítið ef bara nokkurn skapaðan hlut.  Við getum tekið eitt mjög gott dæmi um þetta:  Ef þú ert með annan fótinn í fötu með brennandi heitu vatni og hinn fótinn í fötu með ísvatni, þá hefurðu það ekki að "meðaltali" alveg ágætt.  En mér fannst alveg stórkostleg skemmtun að lesa spá um komu ferðamanna til landsins á næstu árum.  Kannski sannast þarna að það er alltaf erfitt að spá og þá sérstaklega um framtíðina.  En það væri gaman að sjá þau gögn sem liggja til grundvallar þessari "spá".  Annað í þessu er á svipuðum nótum og reyndar þannig að ég nenni ekki að tala um það......


mbl.is „Djúpt en von­andi stutt sam­drátt­ar­skeið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER VIRKILEGA VERIÐ AÐ "DRAGA FRAM" EITTHVAÐ 27 ÁRA GAMALT ATVIK??

Það er sko ekkert grín að fara í forsetaframboð þarna fyrir Westan og sjálfsagt á þetta eftir að koma upp hér á landi í einhverri mynd.  Djöfull er ég heppinn að það skuli ekki nokkur maður vera að spá í hvað ég gerði af mér fyrir tæpum 30 árum........embarassed


mbl.is „Ekki kjósa mig ef þið trúið henni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Kona ein var að steikja egg handa sínum heittelskaða eiginmanni. Allt í einu ryðst bóndinn inn í eldhúsið. "Varlega varlega...! Settu meira smjör!  Guð hjálpi mér...!  Þú ert að steikja Of mörg egg í einu. OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA!" "Við þurfum meira Smjör. Guð minn góður! VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR!Eggin munu festast!" "Varlega...VARLEGA! Ég sagði VARLEGA! Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar! ALDREI! Snúðu þeim! Drífðu þig! Ertu geggjuð! Ertu búin að tapa glórunni? Ekki gleyma að salta eggin. Þú gleymir alltaf að salta. Nota salt. NOTA SALT! S A L T!"  Konan horfði á hann og sagði. "Hvað er eiginlega að þér? Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?"Eiginmaðurinn svaraði rólega, "Mig langaði bara að leyfa þér að finna hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum."....


OG ER FLUGVÖLLUR Í HVASSAHRAUNI ENN Á TEIKNIBORÐINU????????

Það er ekki linnt látunum fyrr en verður búið að koma því þannig fyrir að ekki verði hægt að leggja Sundabrautina, sem er búin að vera á teikniborðinu í meira en 20 ár, en einhverra hluta vegna hefur tekist að tefja það mál allan þennan tíma.  En það sem er alvarlegast er að "meirihlutinn" í Reykjavík, með borgarstjóra í broddi fylkingar, gengur með þá draumóra að losna við flugvöllinn úr Vatnsmýrinni, þau eru alveg viss um að þar séu svo verðmætar byggingalóðir.  Og ætla að byggja nýjan flugvöll í Hvassahrauni, eða réttara sagt ætla þau að "láta" ríkið byggja nýjan flugvöll í Hvassahrauni.  Halda þau virkilega að það sé til fjármagn í svona gæluverkefni á þessum tímum.  Hvað er hægt að gera til að stoppa svona vitleysu?????????


mbl.is Þrengt að veglínu Sundabrautar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÝÐIR SCHENGEN SAMNINGURINN AÐ ÍSLAND SÉ AÐILDARRÍKI ESB??????

Eða í þessu tilfelli, var Dómsmálaráðherra að gera það sama og Júdas gerði hérna um árið??????


mbl.is Bíllinn merktur ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKIPTIR LITLU UM HVORT VIÐ OPNUM LANDIÐ FYRIR FERÐAMÖNNUM......

Aðrir þurfa líka að opna sín landamæri.  Kannski er Ferðamálaráðherra ekki alveg með það á hreinu hvaðan ferðamennirnir eiga að koma????????


mbl.is „Við munum fara hægt af stað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"RÁÐGJÖF" HAFRÓ BYGGIST BYGGIST Á EINHVERJU ÖÐRU EN VÍSINDUM!!!!!

Þetta eru engin ný sannindi heldur er þetta nokkuð sem hefur verið þekkt áratugum saman og menn hafa ekki mátt eða getað talað um.  Augljósasta dæmið um FÖLSUN HAFRÓ er "togararallið" eða "ruslahaugarallið" sem hefur verið grundvöllur stofnstærðarmælinga HAFRÓ síðan 1983.  Í grófum dráttum gengur þetta "togararall" út á það að það er togað á fyrirfram ákveðnum stöðum á hverju ári í landhelginni á nákvæmlega sama tíma, á hverju ári, nákvæmlega jafn lengi, með nákvæmlega eins veiðarfærum.  Á þeim aldarfjórðungi, sem þetta hefur verið í gangi hafa orðið MJÖG MIKLAR breytingar og þróanir í gerð veiðarfæra, ekki er í þessum “RANNSÓKNUM” tekið NOKKUÐ tillit til þess og meira að segja er orðið svo að til þess að geta endurnýjað þessi veiðarfæri og það sem með á að nota verða HAFRÓ menn að fara í hinar og þessar geymslur fyrir AFLÓGA og ÚRELT dót í þeirri von að fá varahluti til þess að geta haldið þessum “VÍSINDALEGU RANNSÓKNUM” sínum áfram á upphaflegum forsendum.  Miklar breytingar hafa orðið á hitastigi sjávar á þessum tíma, hitastig sjávar hefur hækkað, hér við land veiðast nú fiskitegundir sem eingöngu var hægt að lesa um áður og hefðbundnar tegundir við landið hafa FÆRT sig til t.d þegar ég var til sjós fyrir tæpum 30 árum fékkst ekki KARFI norðar en í sunnanverðum Víkurál en nú fæst karfinn mikið norðar og svona er um fleiri tegundir.  Svo er annað sem EKKI virðist vera tekið tillit til en það er að fiskurinn er með SPORÐ og notar hann óspart, þannig að fiskur sem var á rannsóknarsvæði 146 kl 14.07 1987 er þar ekki aftur á nákvæmlega sama tíma að ári og alls ekki 2007 eða 2009 og hvað þá 2019.  Það er ekki að sjá að tekið sé tillit til hafstrauma, sjávarfalla, tunglstöðu, átu í hafinu það er eins og menn haldi að hafið sé EITT STÓRT FISKABÚR sem sé algjörlega ÓHÁÐ ytri skilyrðum.  Svo eru menn HISSA á því að fiskistofnarnir við landið fari alltaf minnkandi.  Aðeins einn fiskifræðingur, hefur haldið uppi einhverri vitrænni gagnrýni á aðferðir HAFRÓ, en það er Jón Kristjánsson og hver hafa viðbrögðin verið?  Jú, í stað þess að taka gagnrýninni  og fara yfir rökin og staðreyndirnar, hafa yfirmenn HAFRÓ rægt hann og reynt að gera störf hans og rannsóknir ótrúverðugar.  Auðvitað færir fiskurinn sig til og fer það eftir aðstæðum í hafinu hvar hann heldur sig en ekki eftir einhverjum fyrirfram gefnum forskriftum frá HAFRÓ.  Auðvitað vilja forráðmenn stórútgerðarinnar EKKI að fiskverðið LÆKKI og því eru þeir með „sína menn“ hjá HAFRÓ og þeir sjá til þess að „niðurstöður“ TOGARARALLSINS verði þannig að fiskveiðikvótinn verði ekki aukinn og þá LÆKKAR ekki kvótaverðið og kvótahafar geta haldið okrinu áfram og þetta er ekki nóg fyrir þá það þarf að komast yfir hverja einustu tegund, sem er í sjónum og ruglast til að álpast inn í landhelgina.   Öllum er örugglega í fersku minni þegar makríllinn kom hingað og bjargaði efnahagslífinu.  Til að byrja með var makríllinn „utan kvóta“ og þá sáu stórútgerðarmenn sér leik á borði og „mokuðu“ þessum „hælisleitanda“ upp og veiddu þennan fisk ótakmarkað og meðferðin á aflanum var slík að þetta fór allt í GÚANÓ allt í þeim tilgangi að ná í svokallaða „veiðireynslu“, því þeir „VISSU“ að þessi tegund yrði kvótasett sem varð svo raunin.  En „þeirra maður“ var EKKI sjávarútvegsráðherra þá og við kvótaúthlutunina lét hann einhverja trillukarla hafa einhvern hluta af kvótanum.  Svona framkomu gátu kvótagreifarnir ekki sætt sig við og sjö þeirra ákváðu að fara í mál við Íslenska ríkið til að fá BÆTUR fyrir þessi afglöp þessa ráðherra, reyndar hafa fimm stórútgerðir gengið úr skaftinu dregið sig út úr þessari málsókn þannig að tvær útgerðir eru eftir en það er tveimur of mikið.  Þetta sýnir svart á hvítu hversu óforskömmuð þessi „útgerðarelíta“ er óforskömmuð og stjórnlaus af GRÆÐGI.  En nú er stórútgerðin búin að koma „sínum manni“ í stól Sjávarútvegsráðherra og hans verkefni er að koma GRÁSLEPPUNNI inn í kvóta og nýtur aðstoðar HAFRÓ við það verkefni og HAFRÓ beitir svipuðum „vísindum“ við að ákveða stofnstærð GRÁSLEPPUNNAR eins og stofnstærð BOTNFISKA er „fundin“.  Hvernig HAFRÓ  getur ákveðið og fundið stofnstærð GRÁSLEPPU er hulin ráðgáta með öllu, því eftir því sem ég best veit þá veit ekki nokkur maður hvar þessi fiskur heldur sig þar til hann hrygnir.  En það á að koma þessari tegund í kvóta og hvernig verður farið að því skiptir „útgerðarelítuna“ engu máli.......


mbl.is Ráðgjöf Hafró sögð á skjön við gögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband