ER VERIÐ AÐ "SVERMA FYRIR" BÓKMENNTAVERÐLAUNUM NÓBELS????

Það þarf nú engan speking til að segja það að samdrátturinn kemur til með að verða mun meiri en 9,2% á árinu hann verður aldrei minni en 15-20% og er það varlega áætlað.  Ef við hugsum bara svolítið rökrænt þá hlýtur hver heilvita maður að sjá það að ferðamannaiðnaðurinn verður ENGINN það sem eftir lifir af þessu ári.  Það getur verið að hingað slæðist einn og einn ferðamaður en hér verður engin atvinnugrein sem heitir ferðamannaiðnaður út þetta ár og við megum bara þakka fyrir ef við fáum hingað 500.000 ferðamenn næsta sumar (sumarið 2021)  Mér finnst ansi "varlega" spáð með að atvinnuleysið verði bara 9,6% að meðaltali þetta ár.  Mér er alltaf svolítið illa við þessi MEÐALTÖL, því meðaltal segir afskaplega lítið ef bara nokkurn skapaðan hlut.  Við getum tekið eitt mjög gott dæmi um þetta:  Ef þú ert með annan fótinn í fötu með brennandi heitu vatni og hinn fótinn í fötu með ísvatni, þá hefurðu það ekki að "meðaltali" alveg ágætt.  En mér fannst alveg stórkostleg skemmtun að lesa spá um komu ferðamanna til landsins á næstu árum.  Kannski sannast þarna að það er alltaf erfitt að spá og þá sérstaklega um framtíðina.  En það væri gaman að sjá þau gögn sem liggja til grundvallar þessari "spá".  Annað í þessu er á svipuðum nótum og reyndar þannig að ég nenni ekki að tala um það......


mbl.is „Djúpt en von­andi stutt sam­drátt­ar­skeið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband