STÓRA SPURNINGIN ER: VERÐUR "GÁMURINN" ÞÁ EKKERT NOTAÐUR???????

Verður þetta þá enn eitt dæmið um algjörlega ónýtta fjárfestingu og minnisvarði um bruðl stjórnmálamanna með almannafé.  Og þetta var tákn um stórkostleg viðbrögð stjórnvalda við þessari vá sem Covid-19 veiran er......


mbl.is Eiginkona mannsins ekki smituð af kórónuveiru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FARIÐ YFIR "STRIKIÐ" HJÁ RÚV Í KASTLJÓSINU Í KVÖLD........

Nú verður settur útvarpsstjóri að taka hann Einar  "Á TEPPIÐ", eftir glórulausa framkomu hans í "KASTLJÓSINU" í kvöld.  Það var nokkuð augljóst að Inga Sæland var ekkert ofarlega á vinsældalistanum hjá honum.  En hans persónulegu skoðanir eiga EKKI að ráða þáttagerðinni hjá honum eins og raunin var með þennan þátt.  Ekki nóg með að hann sýndi henni hroka  og dónaskap, heldur reyndi hann að niðurlægja hana en Inga Sæland er þekkt fyrir að hafa munninn fyrir neðan nefið og á auðvelt með að svara fyrir sig og lætur ekki hrokafulla uppskafninga segja sér hvernig eigi að sitja og standa.  Þessi Kastljósþáttur verður Einari og RÚV til ævarandi skammar og spurning hvort núverandi settur útvarpsstjóri eða nýr útvarpsstjóri taki á þessu máli og láti Einar biðja Ingu Sæland afsökunar á framkomunni í þessum þætti og að grípa til viðeigandi aðgerða í það minnsta verða þáttastjórnendur að kunna almenna kurteisi og gera sér grein fyrir að eitt er starfið og annað gildir um persónulegar skoðanir..........


ÞETTA REDDAST "SYNDRÓMIÐ" EN SVO MÁ EKKI GLEYMA STÓRU AÐGERÐINNI GEGN VÍRUSNUM SEM ER GÁMURINN FYRIR UTAN LANDSPÍTALANN....

Og svo er fólki sagt að þvo sér bara um hendurnar og þá verði bara allt í lagi.  En það er huggun harmi gegn að Kata litla sagði í tíufréttum í kvöld að INNVIÐIRNIR VÆRU STERKIR það hélt hún líka í óveðrinu í desember síðastliðnum, en hver var svo raunin þegar á hólminn var komið??????cool wink


mbl.is Heilbrigðiskerfið ráði við það versta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÞAÐ EITTHVAÐ MÁLUM BLANDIÐ?????????

Svo LÝGUR framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað alveg blákalt að fundargestum með því að segja að þessi eigandi sé "aðeins" með einn stjórnarmann en þarna er ekki aðeins um að ræða venjulegan stjórnarmann heldur STJÓRNARFORMANN en verði það að atkvæði falla jafnt, vaðandi stjórnartillögu, þá er það atkvæði stjórnarformanns sem ræður úrslitum.  Ekki eru Samherjamenn neitt feimnir við það erlendis að tala um að Síldarvinnslan á Neskaupsstað sé í þeirra eigu............


mbl.is Tengsl Samherja og Síldarvinnslunnar til umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN ER EKKI FULL ÁSTÆÐA TIL AÐ LOKA ÍSLANDI??????

Nú þegar þessi veira er við "bæjardyrnar" hjá okkur, þá virðist þetta vera "effektífasta" leiðin þó svo að einhverjir fjárhagslegir hagsmunir mæli gegn þessari aðgerð, þá eru langtímahagsmunirnir af þessu það miklir, að fjárhagslegu hagsmunirnir blikna í samanburðinum.  Það er ekki skrítið að einhverjir velti því fyrir sér hvort einhver "þrýstingur" valdi því hversu "máttleysislega" er brugðist við?????????


mbl.is Sjö Íslendingar í sóttkvínni á Tenerife
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÓRFURÐULEG "DEILA"..........

"SJALDAN VELDUR EINN ÞEGAR TVEIR DEILA" segir gamalt máltæki, en eins og fréttir hafa verið um þetta mál, mætti ætla að ÖLL sökin á "taprekstri" ÁLVERSINS Í STRAUMSVÍK liggi hjá Landsvirkjun.  En er það svo?  Nú er ekki betur vitað en að álverið í Straumsvík kaupi súrálið, sem það notar í framleiðsluna,af móðurfélagi sínu, er eðlilegt verð á því?  Og svo má ekki gleyma því að ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK fær ALLAN innskatt endurgreiddan en það nemur tugum milljarðakróna á ári og þar með  fær áverið 19,35% afslátt af rafmagninu í formi endurgreiðslu á virðisaukaskatti.  Í mínum bókum er ekki um neitt annað að ræða en ríkisstyrk...........


mbl.is Trúnaður gildir þar til samkomulag næst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VONANDI HEFUR ÞETTA "TOGARARALL" (RUSLAHAUGARALLIÐ) TEKIÐ EINHVERJUM BREYTINGUM FRÁ UPPHAFI

Þessar "FISKIRANNSÓKNIR" í mars á hverju ári sem HAFRÓ hefur notast við til að ákvarða stærð fiskistofnana við landið eru ekkert annað en lélegur brandari og það er vanvirða að kenna þetta "fúsk" við vísindi.  Nú verður aðeins fjallað um það hvernig  HAFRÓ hefur framkvæmt sínar "rannsóknir" fram til þessa.  Því en það er dapurlegt að sú stofnun skuli kenna rannsóknaraðferðir sínar við vísindi og það er kannski enn dapurlegra að hugsa til þess að Íslensk stjórnvöld skuli “kyngja þessari ráðgjöf” án nokkurrar sjáanlegrar gagnrýni.  Nú ætla ég að reyna að gera aðeins grein fyrir  “rannsóknaraðferðum”  HAFRÓ en á niðurstöðum  þessara  “rannsókna”  byggja þeir ALLT stofnstærðarmat þorsks og annarra botnfiska við strendur Íslands á.  Í rétt um 35 ár hefur HAFRÓ byggt ALLAR sínar STOFNSTÆRÐARÁÆTLANIR botnfiska í landhelginni og við strendur landsins á svokölluðu TOGARARALLI, sem er þannig útfært:  Togað er á fyrirfram ákveðnum stöðum í landhelginni á nákvæmlega sama tíma, á hverju ári, nákvæmlega jafn lengi, með nákvæmlega eins veiðarfærum.  Á þeim 35 árum, sem þetta hefur verið í gangi, hafa orðið MJÖG MIKLAR breytingar og þróanir í gerð veiðarfæra, ekki er í þessum “RANNSÓKNUM” tekið NOKKUÐ tillit til þess og meira að segja er orðið svo að til þess að geta endurnýjað þessi veiðarfæri og það sem með á að nota verða HAFRÓ menn að fara í hinar og þessar geymslur fyrir AFLÓGA og ÚRELT dót í þeirri von að fá varahluti til þess að geta haldið þessum “VÍSINDALEGU RANNSÓKNUM” sínum áfram á upphaflegum forsendum.  Miklar breytingar hafa orðið á hitastigi sjávar á þessum tíma, hitastig sjávar hefur hækkað, hér við land veiðast nú fiskitegundir sem eingöngu var hægt að lesa um áður og hefðbundnar tegundir við landið hafa FÆRT sig til t.d þegar ég var til sjós fyrir 30 árum fékkst ekki KARFI norðar en í sunnanverðum Víkurál en nú fæst karfinn mikið norðar og svona er um fleiri tegundir.  Svo er annað sem EKKI virðist vera tekið tillit til en það er að fiskurinn er með SPORÐ og notar hann óspart, þannig að fiskur sem var á rannsóknarsvæði 146 kl 14.07 1987 er þar ekki aftur á nákvæmlega sama tíma að ári og alls ekki 2007 eða 2009 og hvað þá 2020.  Það er ekki að sjá að tekið sé tillit til hafstrauma, sjávarfalla, tunglstöðu, átu í hafinu það er eins og menn haldi að hafið sé EITT STÓRT FISKABÚR sem sé algjörlega ÓHÁÐ ytri skilyrðum.  Svo eru menn HISSA á því að fiskistofnarnir við landið fari alltaf minnkandi.  Aðeins einn fiskifræðingur, hefur haldið uppi einhverri vitrænni gagnrýni á aðferðir HAFRÓ, en það er Jón Kristjánsson og hver hafa viðbrögðin verið?  Jú, í stað þess að taka gagnrýninni  og fara yfir rökin og staðreyndirnar, hafa yfirmenn HAFRÓ rægt hann og reynt að gera störf hans og rannsóknir ótrúverðugar.


mbl.is Fjórir vildu leigja skip í togararallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAR EKKI TOLLFRJÁLS AÐGANGUR FYRIR ÍSLENSKAR SJÁVARAFURÐIR FORSENDAN FYRIR EES SAMNINGNUM????

Á blaðsíðu 11 í Morgunblaðinu í dag, er frétt þess efnis að af Íslenskum sjáfarafurðum, sem fluttar eru til ESB ríkja sé greiddur tollur en að önnur ríki njóti tollfrelsis (ekki er sagt í fréttinni hver þessi ríki eru), en getur verið að til dæmis Noregur og fleiri ríki hafi gert "sérsamninga" við ESB um þessi mál?  SÉ SVO ER GRUNDVÖLLURINN FYRIR EES SAMNINGNUM ROKINN ÚT Í VEÐUR OG VIND OG EKKI VERÐUR BETUR SÉÐ EN AÐ UPPSÖGN EES SAMNINGSINS VERÐI KOSNINGAMÁL Í NÆSTU ALÞINGISKOSNINGUM, SEM VONANDI VERÐA SEM ALLRA FYRST.....


Föstudagsgrín

Sonurinn:  „Er það satt pabbi, að í sumum ríkjum Afríku kynnist
eiginmaðurinn ekki eiginkonunni, fyrr en hann giftist henni"?
Faðirinn: „ Það gerist í öllum löndum, sonur sæll"........


HANN ROÐNAR VÍST ÞEGAR HANN SEGIR SATT........

Þó laug hann ekki algjörlega í Kastljósinu í gærkvöldi, heldur fór hann aðeins í kringum sannleikann því þessar "miklu" hækkanir, sem hann talaði um, áttu að koma í litlum þrepum á ÞREMUR ÁRUM en það mátti skilja það af orðum hans að þessar hækkanir kæmu STRAX til framkvæmda.  Það er sagt að það séu til þrjár tegundir af LYGI; það er LYGI, HAUGALYGI og TÖLFRÆÐI.  Ekki er ég með alveg á hreinu hvaða lygi Dagur notaðist við þarna í Kastljósinu en ég hallast að því að hann hafi notast við TÖLFRÆÐINA, í það minnsta að hluta til.......


mbl.is Segja borgarstjóra fegra mögur tilboð borgarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞORSTEINN MÁR ER KANNSKI HALDINN ÞEIRRI BÁBILJU AÐ ÍSLENDINGAR SÉU FARNIR AÐ SAKNA HANS???

Eða þá að hann haldi að gullfiskaminni landans geri það að verkum að hin "miklu" verk Samherja í Namibíu séu orðin að mestu fyrnd og nú verði honum óhætt að mæta aftur fram í dagsljósið og eftir smátíma geti hann tekið upp fyrri starfshætti eins og ekkert hafi í skorist........


mbl.is Björgólfur áætlar að hætta hjá Samherja fljótlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á EKKI BARASTA AÐ FÆRA ÖLL VÖLD Í ÞESSUM MÁLUM TIL NO BORDERS OG ANNARRA LÍTILLA OG HÁVÆRRA ÞRÝSTIHÓPA????

Það er náttúrulega algert lágmark að málin séu rétt "matreidd" ofan í fjölmiðla, sem svo aftur upplýsa almenning.  Sé þetta fólk "googlað" koma athyglisverðar upplýsingar í ljós:  Írönsk yfirvöld leggja síður en svo fæð á transfólk, þar eru ALLAR aðgerðir og sálfræðimeðferðir transfólks greiddar að fullu og fær transfólk alla þá aðstoð sem þeir þarfnast og er alls ekki um það að ræða að transfólk sé í nokkrum vandræðum þar.  En aftur á móti er heimilisfaðirinn eftirlýstur af stjórnvöldum í Íran, fyrir að vinna gegn stjórnvöldum.  Þannig að ekki verður annað séð en að hann sé að nota barnið til þess að fá hæli hér á landi.  Svo eru biskup Íslands og vígslubiskuparnir á Hólum og í Skálholti að láta þessa þrýstihópa teyma sig á asnaeyrunum og tjá sig um mál sem þau hafa ekki græna glóru um.  En auðvitað hafa NO BORDERS og "GÓÐA FÓLKIÐ" engan áhuga á því að sannleikurinn komi í ljós......


mbl.is „Öll eigum við rétt á mannhelgi og vernd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER SVONA ROSALEGA ERFITT AÐ LAGFÆRA ÞESSI ÖRFÁU ATRIÐI SEM STANDA Í VEGINUM?????

Stjórnvöld hafa haft tímann frá árinu 2006, til að bregðast við athugasemdum FATF gerði.  Eru einhver öfl hér á landi sem ekki vilja að nein höft veri sett á þessi mál????????


mbl.is Förum í fyrsta lagi af gráa listanum í október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"HVERS VEGNA ER ÞAÐ SKYLDA OKKAR AÐ VEITA ÞESSUM DRENG SKJÓL"????

Alveg er þetta dæmigert fyrir málflutning og herfræði "GÓÐA FÓLKSINS" og "NO BORDER" liðsins.  Það er fyrst og fremst höfðað til þess að þarna sé um barn að ræða og það sé "ómannúðlegt" að vísa barni úr landi.  Þarna er þá komin alveg skotheld leið fyrir hælisleitendur inn í landið, gangi herfræði "NO BORDERS" liðsins eftir.  Bara að koma með barn með sér til landsins, það má ekki taka DNA-sýni úr barninu og meintum foreldrum, svo er bara að koma með einhverja sögu til að undirstrika lífshættuna, sem fólkið er í ef það er sent til baka.  Þetta fólk kom fyrst til Portúgal og að sjálfsögðu á að taka málið fyrir þar.  En það hefur ekkert komið fram um það hvort fólkið var skilríkjalaust við komuna hingað.  Hvernig er það, hafa Íslendingar ekki enn þá sett lög, sem gera flutningsaðila skilríkjalauss fólks til landsins ábyrg fyrir þannig fólki?  Ég veit að til dæmis í Hollandi og Bandaríkjunum, eru þannig lög og háar sektir og fleiri viðurlög eru við brotum á þessum lögum.......


mbl.is „Skylda okkar að veita þessum dreng skjól“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MARKAÐSVIRÐI BANKANNA Í SÖGULEGU LÁGMARKI OG MARKAÐURINN NÁLÆGT "ALKULI".

Þá vill Bjarni Ben endilega selja Íslandsbanka.  Hvers vegna ætli það sé? Einhvern tíma heyrði maður að það ætti að selja þegar verð væri hátt en aftur á móti kaupa þegar verð væri lágt.  En þessi "speki" virðist ekki hafa náð inn í ríkisstjórnina í það minnsta er ekki farið eftir henni.  Hvaða hagsmuna er verið að gæta???????


mbl.is Launakostnaður hæstur hjá Íslandsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERJUM ÆTLI SÉ EKKI SKÍTSAMA........

Hvar ætli mörkin liggi á því hvað sé frétt og hvað ekki????????


mbl.is Segir Pútín ferðast með eigið klósett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER EITTHVAÐ Í GANGI Í "SAMHERJAMÁLINU" Á ÖLLUM VÍGSTÖÐVUM - NEMA Á ÍSLANDI

Halda stjórnvöld hér á landi virkilega að það sé hægt að þagga málið niður og láta sem ekkert sé??????


mbl.is „Við reiknuðum með þessu og undirbjuggum okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER GREINILEGA EKKI NÓG FYRIR ÞÁ AÐ FÁ TUGI MILLJARÐA Á ÁRI Í RÍKISSTYRKI Í FORMI ENDURGREIÐSLNA Á VSK....

Talandi um það að hinir og þessir séu umboðslausir.  Það er náttúrulega ljóst að það er verið að undirbúa brottflutning af landinu og hann á að verða á kostnað starfsmannanna.  En ég verð að segja að ég fékk nett áfall, þegar ég sá hversu mikið STÓRIÐJAN frá ríkinu í formi virðisaukaskatts, en árið 2011 fékk STÓRIÐJAN endurgreiddar 56.572.702.329 (56 milljarða 572 milljónir 702 þúsund 329 krónur) sem eru á virði í maí 2019 70.116.590.810 (70 milljarðar 116 milljónir 590 þúsund 810 krónur).  Þetta vill enginn í stjórnkerfinu kannast við en tölurnar ljúga ekki og svo má ekki gleyma rafmagnsverðinu, það er ekki nóg með að STÓRIÐJAN fái rafmagnið á "spottprís" heldur er rafmagnið einnig með 19,35% afslætti.......


mbl.is Rio Tinto meinar undirskrift nýs kjarasamnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STRAX BYRJAÐ AÐ "UNDIRBÚA" FRAMÚRKEYRSLU.........

Og grunnurinn ekki einu sinni kominn.  Einhvern tímann var sagt að flestar kostnaðaráætlanir væru þannig að óhætt væri að taka upphaflegu kostnaðaráætlunina og margfalda hana með "píi" (3,1416).  Miðað við fyrri reynslu virðist þetta vera nokkuð nærri lagi...........


mbl.is Aukinn kostnaður við bankahúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER ENGAN VEGINN ÁSÆTTANLEGT........

Var það ætlunin með því að gera RÚV að OHF að rjúfa tengslin algjörlega við almenning og gera stofnunina að ríki í ríkinu?  Ef RÚV hefur ekki skyldur við almenning lengur er ekki nein ástæð til þess að almenningur sé að styrkja rekstur þessa "skrímslis" lengur.......


mbl.is Rökstyðja ekki ráðningu útvarpsstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband