VAR EKKI TOLLFRJÁLS AÐGANGUR FYRIR ÍSLENSKAR SJÁVARAFURÐIR FORSENDAN FYRIR EES SAMNINGNUM????

Á blaðsíðu 11 í Morgunblaðinu í dag, er frétt þess efnis að af Íslenskum sjáfarafurðum, sem fluttar eru til ESB ríkja sé greiddur tollur en að önnur ríki njóti tollfrelsis (ekki er sagt í fréttinni hver þessi ríki eru), en getur verið að til dæmis Noregur og fleiri ríki hafi gert "sérsamninga" við ESB um þessi mál?  SÉ SVO ER GRUNDVÖLLURINN FYRIR EES SAMNINGNUM ROKINN ÚT Í VEÐUR OG VIND OG EKKI VERÐUR BETUR SÉÐ EN AÐ UPPSÖGN EES SAMNINGSINS VERÐI KOSNINGAMÁL Í NÆSTU ALÞINGISKOSNINGUM, SEM VONANDI VERÐA SEM ALLRA FYRST.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ef ég man rétt Jóhann þá var forsendan gott betur en það, menn ginntir með því að unnar sjávarafurðir, fullbúnir fiskréttir, yrðu fluttir tollfrjálst inn á Evrópska efnahagsvæðið í tímans rás. Það voru bara hrávöruþjóðir sem fluttu út freðin 5 pund og blokk.

Nú er fiskurinn fluttur beint úr landi í frystihúsin á meginlandinu, það er svo mikil eftirspurn eftir ferskum fiski. En til allrar guðslukku þá eiga íslensku sölufyrirtækin frystihúsin úti sem kaupa ferska fiskin til að frysta hann svo hægt sé að áframselja hann til fiskréttafyrirtækjanna.

Allir að græða nema fíflin út um allt land sem trúðu að með EES fengist allt fyrir ekkert og blómleg tíð væri í vændum. 

Þetta heitir á pjúra íslensku að tapa þorskastríði með föðurlandssvikum.

Magnús Sigurðsson, 21.2.2020 kl. 15:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér kærlega fyrir Magnús.  Að mínum dómi (og þeir eru örugglega fleiri) þá held ég að EES samningurinn sé farinn að valda meiri skaða en hitt og það eina rétta í stöðunni er að segja honum upp þannig að að landið ENDURHEIMTI SJÁLFSTÆÐI SITT MEÐ TÍMANUM.....

Jóhann Elíasson, 21.2.2020 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband