SENNILEGA VAR ÁSTÆÐAN FYRIR STÓRLEIK PORTÚGALSKA LIÐSINS SÚ AÐ RONALDO BYRJAÐI EKKI LEIKINN

Seinni árin hefur mér fundist leikur Portúgalska liðsins snúast of mikið um persónu Ronaldos en kannski minna um fótboltann sem slíkan og Portúgalska liðið hefur ekki fengið að njóta sín sem heild.  En á þessu varð heldur betur breyting í kvöld þegar Ronaldo kom ekki inn á fyrr en seinni hálfleikurinn var um það bil hálfnaður.  Ég man ekki eftir betri leik af hálfu Portúgalska liðsins og þá er ósanngjarnt að velja einhvern einn þar úr því það má segja að allir hafi átt stórleik þar sem  liðsheildin var alveg stórkostleg.  Maður fékk það á tilfinninguna þegar staðan var orðin 5 - 1 að Svissle3ndingarnir væru bara að bíða eftir því að þessari martröð færi að ljúka e svo var ekki alveg raunin og til að "snúa hnífnum í sárinu" skoruðu Portúgalar eitt mark í lokin og enduðu á að vinna 6 - 1 og svei mér þá þeir hefðu getað skorað meira en þeir létu þetta duga..........


mbl.is Ramos með þrennu í stórsigri Portúgals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. desember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband