ÞAÐ ER SAGT AÐ FJÁRHGSVANDI SVEITARFÉLAGANNA SÉ VEGNA FATLAÐS FÓLKS....

En á sama tíma ÞORIR ekki einn einasti sveitarstjórnarmaður hér á landi að segja það að innflutningur hælisleitenda hafi í för með sér NEIN vandamál fyrir sveitarfélögin, af hræðslu við að fá "GÓÐA FÓLKIÐ" yfir sig með sína "HAKKAVÉL". Ég bý í Reykjanesbæ og hef heldur betur fengið að kynnast "hælisleitendavandamálinu" hér í bæ þessa síðustu mánuði og menn hafa bara sagt við mig að þeir hefðu aldrei trúað því að ástandið í Reykjanesbæ væri svona slæmt eins eins og raun ber vitni ef einhver hefði sagt þeim það, þeir urðu að sjá þetta og reyna á eigin skinni (ég tek það fram að enginn þessara aðila bjó hérna í bæjarfélaginu).  Hér eru úthlutanir á vegum fjölskylduhjálparinnar tvisvar í viku og á "úthlutunardögum" eru biðraðir eftir matargjöfum fleiri hundruð metrar.  Ekki er eitt einasta herbergi á lausu hérna í bæjarfélaginu og svo heldur "GÓÐA FÓLKIÐ" því fram að hælisleitendaflaumurinn hafi ENGIN áhrif á fasteignaverð eða leiguverð, menn þurfa nú ekki að hafa mikið á milli eyrnanna til að sjá það rétta í því.  Það er algjör PLÁGA" að fara í Bónus og Krónuna á fitjum, þar hanga stórir hópar af hælisleitendum og fólk  er bara skíthrætt við þetta lið.  En verst er ástandið við Nettó í Krossmóum (en þar er skiptistöð fyrir strætó, en ég kem nánar að þeim þætti síðar í þessum pistli).  Þarna í Nettó í Krossmóum keyrir alveg um þverbak með fjölda hælisleitenda sem hanga þarna og helsta ástæðan fyrir því að þeir hópast þarna að er víst að þar komast þeir í frítt internetsamband, ég segi nú fyrir mig (það eru víst fleiri sem gera það sama orðið) að ég fer helst ekki þarna í Krossmóana nema ég eigi þangað MJÖG brýnt erindi.  Þá kemur að ALVARLEGASTA vandamálinu, að mínu mati vegna hælisleitendanna en það er að hælisleitendur fá FRÍTT í strætó og þar heldur sig ALLA DAGA hópur af mönnum á aldrinum 20 til 30+ ára gamlir og virðast ekkert hafa fyrir stafni en að áreita ungur stúlkur á grunnsólaaldri.  Ég veit um nokkuð marga foreldra hér á svæðinu sem þurfa að keyra dætur sínar úr og í skóla, því þær ÞORA ekki lengur að fara í strætó.  Nú virðist vera að Félagsmálaráðherra sé MIKIÐ Í MUN að viðhalda þessu kerfi, sem VG hefur komið á og berst fyrir með kjafti og klóm með stuðningi Pírata, Viðreisnar og Samfylkingar og þar á bæ er ekkert verið að spá í kostnað  eða áhrif á samfélagið.  Hann (Félagsmálaráðherra) veifar peningum framan í forráðamenn sveitarfélaga þar sem fjárhagsstaðan er erfið og hreinlega "mútar" þeim til að gera samning um að  taka við hælisleitendum og svo er bara talað um að  staða sveitarfélaganna sé svona slæm vegna fatlaðs fólks??????


mbl.is Sveitarfélögin vantar 30 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. apríl 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband