SÍÐAN HVENÆR URÐU HÆLISLEITENDUR UPPISTAÐAN Í VINNUAFLI Á SUÐURNESJUM?????

Er bæjarstjórinn í Reykjanesbæ ekki með fulla fimm eða er hann viljandi að fara með RANGT mál?  Hefur hann farið hérna í Bónus, Krónuna, Nettó og bókasafnið í Reykjanesbæ, þar sem hælisleitendur "hanga" daginn út og inn og fólk sem á þarna leið um er skíthrætt og flýtir sér að sinna sínum erindum og drífur sig svo í burtu.  Mér skilst að þeir sem "hanga" í Krossmóunum (Nettó) séu þar aðallega vegna þess að þar komast þeir í frítt internet menn eru  víst alveg ráðþrota enda er þetta lið ekki æskilegir viðskiptavinir og eftir að þeir fóru að vera þarna hafa viðskiptin víst dregist mikið saman.  Svo fá þeir frítt í strætó og einhverjir stunda það að "hanga" allan daginn í strætó og áreita ungar skólastúlkur.  Kveður svo rammt að þessu  að ég þekki nokkur dæmi þess að ungar stúlkur þora ekki lengur í strætó og verða foreldrar þeirra að keyra þær í skólann og sækja þær.  Að bæjarstjórinn haldi því fram að þetta lið sé að mestu leiti í vinnu er eins fjarri lagi og nokkuð getur verið og er umhugsunarefni í hvaða veruleika hann lifir í????????


mbl.is 30% íbúa í Reykjanesbæ með erlent ríkisfang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. apríl 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband