EITTHVAÐ HLAUT AÐ GERAST AÐ LOKUM - GOTT AÐ EKKI VARÐ MANNTJÓN..............

Mest er ég hissa á að ekki hafi orðið stórslys fyrr.  Ég hef verið að horfa á "Animal Planet" undanfarið, en þar er Sea Sheppard með sérstakan tíma í dagskránni og þar sýna þeir "baráttuaðferðir" sínar og þvílík "dramatísering" það er engu líkara en maður sé að horfa á ameríska hasarmynd.  Það gefur náttúrulega auga leið að þegar verið er að fara að trufla veiðar þá eru allar siglingareglur þverbrotnar, þær eru settar til þess að vernda sjófarendur þannig að mönnum gefist tækifæri til að bregðast við óvæntum atvikum í tæka tíð.  Í yfirlýsingu frá Sea Shepherd segir, að japanska skipið hafi siglt vísvitandi á Ady Gil (nafnið á bátnum). Við áreksturinn brotnaði stór hluti af hraðbátnum og hann er nú að sökkva. Ekki gef ég nú mikið fyrir þessa yfirlýsingu og það sem kemur frá þessum samtökum tek ég með miklum fyrirvara.
mbl.is Árekstur á hrefnumiðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sammála þér Jóhann

Jón Snæbjörnsson, 6.1.2010 kl. 08:48

2 identicon

hvernig getur stórt skip siglt á hraðbát altaf sama þvælan í BRETUM.

gisli (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 09:18

3 identicon

Umhverfis jörðina á hálfum mánuði er eitthvað skrítið. Í júní 2008 sigldi þessi, eða samskonar bátur á  60 dögum 23 klst og 49 mínútum ( næstum tveim mánuðum) umhverfis jörðina, og eftir því sem ég best veit er það ennþá nýjasta metið fyrir slíka siglingu, það er undarlegt hvað moggamenn eru lítið fyrir að sannreyna það sem þeir prenta hér á síðunni. En annars mér þykir trúlegra að áhöfnin á honum  hafa siglt viljandi á eða fyrir japanska bátinn, og einhverra hluta vegna ekki getað eða viljað forða sér undan árekstri, því ef allt væri  í lagi þá væri léttara fyrir svona hraðskreiðan og lipran skratta að forða sér heldur en þyngri fyrir stærra og ómeðfærilegri hefðbundinn bát að  forða árekstri ef verið er með einhver glannalæti í krngum hann.

Bjössi (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 10:32

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

vor þeir ekki að anskotast með eithvert dót sem þeir reyndu að koma í skrúfuna hjá hvalveiðibátnum - sennilega hefur það haft áhrif á "snerpu" þessa "hraðbáts" Sea Sheppards manna - nokkuð öruggur um að þeir eru kolólöglegir samkv siglingareglum

Jón Snæbjörnsson, 6.1.2010 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband