"ÞETTA ER NÓG ÞETTA ER NÓG" - ER EKKI KOMIÐ NÓG AF ÞESSARI RÍKISSTJÓRN?????

Ríkisstjórn spillingaraflanna og lítilla verka.....  Það litla sem hefur verið gert er til þess fallið að FYRRUM AUÐMENNþessa lands gætu komist aftur að því að verða aðilar að NÆSTA HRUNI en með sama áframhaldi er stutt í NÆSTA HRUN og það sem varð í Október 2008 er bara hreinn barnaleikur hjá því sem er yfirvofandi.  En það er náttúrulega ekki alveg sanngjarnt að segja að "ríkisstjórn fólksins" hafi EKKERT gert - hún sótti jú um aðild að ESB Í ANDSTÖÐU VIÐ ÞJÓÐINA.  Ég held að það sé orðið fullreynt að þessi ríkisstjórn sé sú ALVERSTAsem þjóðin hefur þurft að sitja uppi með og er þó af ýmsu að taka í gegnum tíðina.  Nei það kemur ekkert annað til greina en að þessi ríkisstjórn fari frá eins og hún leggur sig og allur "bútasaumur" til að lappa upp á þetta óbermi er alveg út í hött.
mbl.is Vill frekar þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Jóhann alveg hárrétt hjá þér en það sem við fáum í staðinn við kosningar er sjálfstæðið sem gengur ekki þess vegna verðum við að fá óháða stjórn sem tekur á hlutunum þar eiga að koma að ó spilltir aðilar með áherslu á lýðræði en ekki flokksgræðisstefnu og vinavæðingu eins og firri stjórnvöld hafa lagt ofuráherslu á, ef ekki finnast nógu margir slíkir aðilar á landi voru þá verðum við að fá aðstoð að utan!

Sigurður Haraldsson, 8.2.2010 kl. 08:25

2 Smámynd: Tryggvi Helgason

Ef úrslit atkvæðagreiðslunnar um "Icesave" fara þannig að lögin verði felld,- og, - ef það kynni að leiða til þess að ríkisstjórnin falli, - þá það, - þá verður það svo að vera. Þannig er einfaldlega okkar lýðræðislega kerfi byggt upp.

Þá verður komin upp sú staða að heppilegasta lausnin er að mynda utanþingsstjórn sem verði skipuð mönnum úr atvinnulífinu, en ekki neinum af núverandi þingmönnum, né heldur neinum af þeirra varamönnum.

Tryggvi Helgason, 8.2.2010 kl. 16:27

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér Tryggvi.  Og þó fyrr hefði verið.  Þessi ríkisstjórn hefði átt að vera farin frá fyrir löngu, þar sem þau virðast ekki ráða við verkefninn og hafa slitið sér nánast út bæði Jóhanna og Steingrímur gjörsamlega búin andlega. 

Mál að linni Jóhann, þetta er komið gott.  Nú þarf að fá fagfólk til að leiða okkur út úr þessu.   Það þarf að fara aðra bónarferð til Bessastaða. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.2.2010 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband