AF HVERJU ER LÖGGAN ÞÁ EKKI BÚIN AÐ NÁ HONUM ENNÞÁ??????

Þeir þyrftu kannski að fá þá Geir og Grana í lið með sér??????
mbl.is Þekkja vel hegðun Guðbjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einhverjir hljóta að hafa hýst manninn. Það er refsivert að hýsa strokufanga, en eftir því sem ég best veit hafa slíkir, sem það hafa gert, ekki hlotið dóma fyrir. Auðvitað á að taka hart á slíku.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 15:22

2 identicon

Þetta er það sem gerist þegar fangar, að því er virðist sama hvað þeir hafa gert af sér, fá dagsleyfi eins og ekkert sé eðlilegra. Það koma ekki allir alltaf til baka. Til hamingju Ísland með frábært réttarkerfi.

Hjörtur Brynjarsson (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 15:29

3 Smámynd: Kristinn Þór Sigurjónsson

Hefur þér ekki dottið í hug að hann hafi jafnvel lent í einhverju veseni með hinum raunverulegu höfuðpaurum í pólstjörnumálinu ?? Hann á ekki það mikið eftir af dómnum að manni finnist líklegt að hann fari að reyna flótta. Ég hef illan grun um að hann sé ekki allveg frjáls ferða sinna þó hann sé ekki á Litla Hrauni.

Kristinn Þór Sigurjónsson, 2.3.2010 kl. 15:41

4 identicon

Það getur vel verið. En en dagsleyfi (og hvað þá eftirlitslaus dagsleyfi)væru engin þá gæti það vandamál ekki komið upp heldur, allavega ekki á meðan afplánun stendur yfir.

Hjörtur Brynjarsson (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 15:47

5 identicon

Amerískur flótti: Notaðu skeið til að grafa göng úr klefanum. Feldu grafninginn í buxnaskálminni og losaðu þig við þegar lítið ber á. Skríddu út fyrir fangelsisvegginn í gegnum holræsakerfið. Gæti tekið nokkur ár. Íslenskur flótti: Fáðu dagsleyfi. Ekki koma aftur.

AFX (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 16:12

6 Smámynd: Kristinn Þór Sigurjónsson

ATH að fangelsi á að vera betrunarvist, ekki refsing. dagsleyfi eru veitt þeim sem eru að sýna að þeir eigi það skilið og er hluti af aðlögun að samfélaginu að nýju. Það er ekkert að því að veita föngum þann möguleika að geta komið aftur í samfélagið eftir að betrunarvist líkur.

Og ég er ekki tilbúinn til þess að taka Ameríska réttarkerfið sem fyrirmynd til samanburðar.

Kveðja - www.kristinn.eu

Kristinn Þór Sigurjónsson, 2.3.2010 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband