TIL HVERS ÞINGKOSNINGAR??????????

Þó ég sé alls ekki sammála Steingrími "Júdasi" um það að núverandi ríkisstjórn sé sú besta og sterkasta sem völ er á.  Ríkisstjórn sem ENGU kemur til leiðar og vinnur á MÓTI landi og þjóð getur ekki verið nein óskastjórn.  En síst af öllu þurfum við þingkosningar það sem við þurfum er mannskapur við stjórnvölinn sem hefur GETU og VILJA til að leiða þjóðina út úr þeim vanda sem hún er í.  Ekki nóg með að ríkisstjórnin ráði ekki við vandann heldur virðist allt liðið sem situr á Alþingi gjörsamlega vanhæft og þeir sem sinna stjórnmálum fyrir hönd þjóðarinnar virðast hafa allt aðra hugmynd um hlutverk sitt en meginþorri þjóðarinnar hefur.  Til þess að stjórnmálamennirnir geti haldið áfram "sandkassaleiknum" (á kostnað þjóðarinnar) væri einfaldast að forsetinn skipaði UTANÞINGSSTJÓRN, sem kæmi bara niður í þing hálfsmánaðarlega og gæfi þinginu skýrslu, meira að segja væri nóg að senda skriflega skýrslu til að vera ekki að bruðla með tíma utanþingsstjórnarinnar.  Með þessu móti sparaðist mikill kostnaður vegna þingkosninga og þar að auki værum við NOKKUÐ örugg um að við fengjum starfhæfa ríkisstjórn og smá frið fyrir stjórnmálamönnunum sem hvort eð er hafa bara verið til trafala hingað til.
mbl.is Hörð gagnrýni en vilja samstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þessu með utanþingsstjórn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2010 kl. 09:12

2 Smámynd: Friðrik Jónsson

Það þarf ekkert endilega að kjósa enda enginn tími eða peningar til þess,stjórnin og andstaðan þyrftu að gera samkomulag um að leggja flokkapólitík til hliðar og vinna saman.

Það þarf að semja strax um icesave og starta atvinnulífinu,banna útflutning á óunnum fisk strax og fullverka allan fisk hér heima,það fengi breta til að hugsa um hvað þeir eru búnir að gera okkur og við yrðum betur í stakk búnir til að borga okkaar skuldir.

Friðrik Jónsson, 8.3.2010 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband