HAFA REKSTRAÐILAR "SJÁLFDÆMI" UM BRUNAVARNIR OG ANNAÐ????????

Það er með ólíkindum að lesa þessa frétt.  Samkvæmt henni þá gerði slökkviliðið KRÖFU um að það væru fjórir slökkviliðsmenn á vakt en forráðamenn flugstoða TÖLDU AÐ ÞAÐ NÆGÐI að hafa TVO slökkviliðsmenn.  Ef gerðar eru kröfur um brunavarnir eru rekstraraðilar ekki skyldir til að uppfylla þær, hafa þeir nokkuð vald til að ákveða svona nokkuð sjálfir, til hvers er þá verið með eftirlit?????
mbl.is Hótar að loka Reykjavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ari Kolbeinsson

Pældu í þessu, tveir menn duga til að stýra EINNI slöngu ef eitthvað kemur upp á. Það er enginn aflögufær til að gera nokkuð annað.

Ég er fyrrverandi starfsmaður á vellinum og vann þar sem flugmaður líka og segi það að vinnubrögð flugstoða eru til háborinna skamma. Við sjáum skorið niður í öryggsimálum langt niður fyrir örugg mörk, starsfólk eins og flugumferðarstjórar eiga ekki að fá svipuð laun og vinnuskilyrði og í nágrannalöndum okkar (sem þýðir að það verður fólksflótti með tilheyrandi skatttekjumissi ríkisins) og koma svo fram í fjölmiðlum með hroka og yfirgangi og búa til aðstæður sem eiga ekkert skylt við raunveruleikann (bæði varðandi þessa öryggisfrétt og þegar þeir gáfu upp "laun" flugumferðastjóra, sem var að sjálfsögðu byggt á ímynduðum aðstæðum í hæstu launatöxtum með bullandi næturvinnuálag og yfirvinnu)

Ari Kolbeinsson, 25.3.2010 kl. 14:37

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

þETTA ER BARA ÓTRÚLEGT OG MÉR FINNST HANN JÓN VIÐAR MATTHÍASSON HAFA SÝNT ÞESSU FYRIRTÆKI ALVEG ÓTRÚLEGT LANGLUNDARGEÐ, ÞEIR HEFÐU GOTT AF ÞVÍ AÐ ÞEIM YRÐI AÐEINS "VELGT UNDIR UGGUM".

Jóhann Elíasson, 25.3.2010 kl. 14:47

3 Smámynd: Evert S

SHS hefur enga lögsögu þarna og völlurinn fylgir kröfum í alþjóðastöðlum fyrir flugvelli

Evert S, 25.3.2010 kl. 15:54

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Á hverju ertu eiginlega Evert S????  Flugvöllurinn er innan borgarmarkanna og að sjálfsögðu hefur SHS lögsögu þarna.

Jóhann Elíasson, 25.3.2010 kl. 17:13

5 Smámynd: Evert S

ég er á vatni og að sjálfsögðu hefur SHS EKKI lögsögu þarna. hvað þetta varðar slökkvilið vallarins er bara öryggistæki valarins og ber þeim að fylgja alþjóðastöðlum sem þeir gera, og SHS er stuðningur við þá. þeir hafa akúrat enga heimild til að loka vellinum enda munu þeir aldrei fá leyfi ráðuneytisins til þess. menn ættu að kynna sér flugöryggisreglur áður en þeir fara að blanda sér ú umræðuna með þessum hæti sem þú gerir.

Evert S, 25.3.2010 kl. 18:19

6 Smámynd: Benedikt V. Warén

Flugstoðir ohf fer í umboði ríkisins með og starfrækir flugvelli og flugleiðsöguþjónustu undir ströngu eftirliti Flugmálastjórnar Íslands.  Flugmálastjórn Íslands hefur eftirlit með að lögum frá Alþingi sé framfylgt og heimilar rekstur og/eða stöðvar eftir atvikum,  - ekki einhver slökkvistjóri SHS.  Unnið er eftir alþjólegum stöðlum og samþykktum.

Rétt til umhugsunar.  Sömu flugvélar og nota Reykjavíkurflugvöll í innanlandsflugi, eru að fljúga á flugvellina á Egilsstöðum, Vestmannaeyjum og á Ísafirði, án þess að slökkvimenn hafi gert alvarlegar athugasemdir við það ráðslag, að þar séu ekki "löggiltir" slökkvimenn við störf. 

Þessir starfsmenn flugvalla eru þjálfaðir til slökkvi- og björgunarstarfa af starfsmönnum Slökkviliðs Akureyrar. 

Benedikt V. Warén, 25.3.2010 kl. 19:13

7 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ef það er rétt sem Evert og Benedikt halda fram, að SHS hafi ekki lögsögu á vellinum, þá er eitthvað stókostlegt að. Það þíðir í raun að rekstraraðilar geti ráðið sjálfir hvernig þessum málum er háttað, þó þeir séu undir eftirliti Flugmálastjórnar. 

Það sjá allir sem einhverja reynslu hafa af slökkvistörfum að tveir menn gera ansi lítið ef upp kemur eldur í flugvél. Að það uppfylli alþjóða staðla leyfi ég mér að efast stórlega.

Gunnar Heiðarsson, 25.3.2010 kl. 22:32

8 Smámynd: Evert S

það sem ég á við með að þeir hafi ekki lögsögu á vellinum er það að slökviliðið á vellinum þarf að upp fylla skylirði flugmálastjórnar og alþjóða staðla varðandi flugvallarslökkvilið sem og völlurinn gerir, viðbúnaður þarna miðast við þær vélar sem eru í áætlun á völlinn. ef upp kemur eldur er kallað eftir hjálp almennra viðbragðsaðila sem eru SHS og björgunarsveitir sem og lögregla. þarna er eingöngu verið að tala um mannskap til að bregðast við fyrstir. þegar SHS var þarna með verktakastarfsemi voru þeir almennt með 2-3 menn á stöðinni og 2 aukamennskráða á stöðina en þeir 2 voru nánast allan daginn utan stöðvar að keyra sjúkrabíl þannig að ekki voru fleiri en 2-3 á vellinum áhverjum tíma. og taldi SHS það nóg þar sem þeir kæmu hvort eð er mað allt tiltækt lið á völlinn ef eitthvað gerðist.  Veit ekki hvað hefur breyst sem gerir kröfu til þess að það séu minnst 4 menn á vellinum í dag fyrst 2-3 var nóg meðan SHS synti þessu í verktöku og rukkaði vel rúmlega 130-60 miljónir fyrir mannskapinn. flugmálastjórna átti og rak aðstöðu og tækjabúnað á vellinum

Evert S, 25.3.2010 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband