"ALL ABOUT STRATEGY"!!!!!!!!!!!!!!

Þetta sagði David Coultard eftir Kínakappaksturinn, menn stoppuðu allt uppp í fjórum sinnum til að skipta um dekk.  Kappaksturinn var alveg magnaður að horfa á, það var ekki eingöngu barist á brautinni sjálfri heldur var mikill hasar á þjónustusvæðinu og var einna mesti hasarinn á milli Vettels og Hamiltons þegar þeir voru að yfirgefa þjónustusvæðið þá orkaði líka tvímæli þegar Alonso fór framúr Massa á leið inná þjónustusvæðið.   Það örlaði fyrir gömlum "töktum" hjá Schumacher, en aðeins í smástund þegar hann hélt Hamilton fyrir aftan sig í á þriðja hring, en svo var það eiginlega búið.  Það er engu líkara en það sé eitthvað nokkuð mikið farið af "gamla" neistanum.  Ég er hræddur um  að ef ekki verður mjög fljótlega breyting á frammistöðu hans megi hann fara að passa sæti sitt allverulega.  Að mínum dómi ættu Force India-menn að huga vel að því að halda vel í Adrian Sutil, því mörg lið hljóta að vera farin að "skoða" hann mjög vandlega.  Bernie Eccelstone sagði í viðtali á BBC one að kannski yrði bara að halda næstu formúlu keppni í Kína, vegna eldgossins á Íslandi.  Að sjálfsögð var hann að grínast með þetta en er ekki sagt að öllu gríni fylgi einhver alvara?
mbl.is Button bestur í bleytunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jóhann

" Bestur í bleytunni" tvírætt orð ...það.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 18.4.2010 kl. 11:05

2 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Flott keppni !! spennandi og verðskulduð úrslit (sjáum til hvort Hamilton verði refsað ??)

Kristján Hilmarsson, 18.4.2010 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband