NOKKUÐ MARGT HEFUR KOMIÐ Í LJÓS SEM ÞARF AÐ ENDURSKOÐA!!!!

Séu þetta réttar fréttir hjá Aftenposten, sem ég efast reyndar ekkert um, þá er þetta nokkuð sem Evrópsk flugmálayfirvöld áttu að vera búin að búa sig undir en það virðist vera að menn hafi ekki "viljað" gera það aðallega vegna þess að menn voru í vafa um hvort þeir gætu búið sig undir svona lagað það finnst mörgum þægilegt að nota bara aðferð strútsins  að "STINGA HÖFÐINU Í SANDINN" og láta sem vandamálið sé ekki til staðar.  Kannski að þessi hörmulegi atburður verði til þess að Evrópsk flugmálayfirvöld komi upp neyðáætlun til notkunar þegar aðstæður sem þessar skapast????
mbl.is Vöruðu margoft við hættunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Hilmarsson

 Það er ekki alveg rétt að "hausinn hafi verið í sandinum" (mjög Íslenskt þetta svart/hvíta dæmi) og þetta var jú “neyðaráætlun” að stöva alla flugumferð, en var svo að öllu líkindum “yfir” ákvörðun, viðvörunarkerfið LVAAC átti að vera nógu gott og þannig séð var það það, bara tóku allt of hart í en gerðu það á grunni þeirra upplýsinga sem fyrir lágu og höfðu aðgang að, eða hugsið ykkur ef öll flugumferð hefði bara verið látin halda áfram eins og ekkert hefði í skorist ??? 

Það er þegar búið að gera helling Jóhann! nú þegar þó óskastaðan sé alltaf sú að vera viðbúin ÖLLU, eitt það mikilvægasta er að þessi stofnun : http://metoffice.com/aviation/vaac/london.html var "einráð" í ákvarðanatöku um að stöðva eða stöðva ekki flugumferð vegna ösku frá eldfjöllum, hún verður núna þáttur í stærra "apparati" og upplýsingarnar sem hún gerði sínar ákvarðanir útfrá eru nú fengnar frá fleiri stöðum en áður, þessi "Met Office" er bara ein af 8 um allann heim, og þegar við skoðum heimskortið: http://metoffice.com/aviation/vaac/index.html þá er létt að sjá að "stóru" svæðin hafa meira upp á að hlaupa í loftrými heldur en LVAAC hefur, það er ótrúlega þétt yfir og kring um Evrópu, það er svo auðvitað skýringin hversvegna svona hefur skeð miklu sjaldnar og í minna mæli yfir og kring um kyrrahafið t.d. léttara að beina flugvélum aðra leið, en allt stendur til bóta og það er auðvelt fyrir okkur að gagnrýna alltaf "pabba og mömmu" þegar svona fer, "þetta máttuð þið svosem vita" þú kallar þetta "Hörmulegann" atburð, það fer auðvitað eftir auganu sem sér, en það kemur líka ótrúlega mikið gott út af þessu, t.d. er nú kominn hraðbyr á útbyggingu og nýbyggingu háhraðlesta í Evrópu bæði í Skandinavíu og meginlandinu og mun það gera "intereurope" samgöngur mun óháðari svona atburðum og er það vel því eins og nefnt var áðann, þá er loftrýmið orðið ansi þéttskipað, svo millilandasamgöngur, þar kemur væntanlega nýhugsun hvað varðar upplýsingar og kortleggingu af ösku til að gera þær aftur minna óháðar svona, enda aðeins meira uppá að hlaupa þar í loftrými, en svo megum við ekki gleyma einu og það er að hver flugvél sem tekur sig á loft einhversstaðar, á sér áfangastað annarsstaðar, og ef sá staður er undir öskuskýi þá hefur hún ekkert á loft að gera.

Nei það var og er dreginn mikill lærdómur af þessu Eyjafjallajökulsgosi, og er svoldið hissa þegar menn eru að tala um þetta sem "lítið" gos, það er það ekki, en Katla verður kannski stærri, kannski ekki, við ráðum lítið við það og þaðan af minna við vindáttir og veðurfar þegar svona skeður, en gott að sjá að menn eru komnir í sjálfsgagnrýni og farnir að undirbúa sig betur, t.d. tóku norsku almannavarnir sig sjálfar í gegn og viðurkenndu að á þeirra prógrammi var ekki eldgos í öðrum löndum á blaði einusinni.


Kristján Hilmarsson, 23.4.2010 kl. 13:39

2 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Góður pistill hjá þér Kristján!

Sumarliði Einar Daðason, 23.4.2010 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband