NÚ Á AÐ FARA AÐ SLÁ Í KLÁRINN!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Varla vefst það fyrir nokkrum manni/konu að þetta eru "AÐLÖGUNARVIÐRÆÐUR" en EKKI "AÐILDARVIÐRÆÐUR" eins og lagt var upp með þegar Alþingi var LÁTIÐ samþykkja AÐILDARUMSÓKN.  Nú er það ljóst að verið var að blekkja Alþingi og þjóðina, á ekkert að aðhafast í því???  Og hvaðan á svo þessi MILLJARÐUR að koma sem Ísland á að leggja í "AÐLÖGUNINA"????  Á kannski að skera enn meira niður í "velferðarkerfinu" (velferðarkerfið er nú ekki upp á marga fiska þegar almenningur þarf að standa í biðröðum eftir lífsnauðsynjum)????  Heilög Jóhanna og Árni Páll "tannaði" (hann er heppinn að vera meira en 18 ára því annars hefði Álfheiður bannað honum að fara í ljós) verða nú ekki í vandræðum með það..................
mbl.is ESB leggur milljarða í aðlögun Íslands að stofnana- og regluverki þess
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það var vitað fyrirfram að þessar viðræður kosta eitthvað. En einn milljarður frá okkur en þrír milljarður frá ESB er ekki slæmur díll.

Þú þarft að athuga það að við þetta skapast mikil atvinna fyrir Íslendinga t.d þýðendur og stjórnsýlsufræðingar.   Þá fara atvinnulausur af atvinnulausaskrá. Þá er fólk að fara frá því að vera þiggjendur frá ríkinu yfir í að borga skatt. Og þetta er 3/4 á kostnað ESB.

Þessi milljarður segir þá ekki alla söguna. Við gætum endað á sléttu með betri stjórnsýslu óháð því hvort við gögnum í esb eða ekki.

p.s Árni Páll hefði bara geta farið í sprey tan í staðinn.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.8.2010 kl. 17:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Borgar, hvernig lagar ESB stjórnsýsluna hér, þú hefur mikið tönnlast á þessu en aldrei sagt hvernig?????  Þó svo að ESB leggi fram 3 milljarða vegna aðlögunarferlisins breytir það ekki því að við leggjum fram 1 milljarð og hvaðan á að taka þennan milljarð????

Jóhann Elíasson, 23.8.2010 kl. 20:09

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ég get nefnt eitt dæmi; ESB hefur gagnrýnt mikið skipun dómara á Íslandi. Ráðherra á ekki að skipa dómara.... t.d þegar Árni Matt skipaði son Davíðs Oddsonar sem dómara í Héraðsdóm Austurlands. Þrátt fyrir að hann var ekki metinn hæfastur af fagnefnd sem fjallaði um málið.

Þetta mun líklega lagast við aðlöguna.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.8.2010 kl. 20:14

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

En þú segir ekkert til um hvaðan milljarðurinn á að koma,  annað er bara eins og hvert annað kjaftæði þó svo að við göngum í ESB verður áfram "leppstjórn" hér á landi og hver segir að ekki verði áfram sama spillingin???   Og þess fyrir utan var Þorsteinn Davíðsson ekki skipaður dómari við héraðsdóm Austurlands.

Jóhann Elíasson, 23.8.2010 kl. 23:15

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Héraðsdóm Norðurlands eystra.

Sleggjan og Hvellurinn, 24.8.2010 kl. 04:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband