HVAR ERU MÖRKIN EIGINLEGA????????????

"Viðtalið" við Fjármáráðherra í Kastljósinu í gærkvöldi, var með svo miklum eindæmum að það nær ekki nokkurri átt, hvað maðurinn/mannleysan kemst upp með að drepa málum á dreif, beita málskrúði, svara ekki spurningum og hreinlega að hrifsa til sín þáttastjórnunina og þegar þátturinn er búinn þá átta menn sig á því að EKKERT kom fram, sem hann hafði ekki sagt áður á öðrum vettvangi.  Þetta er ekki fyrsta "drottningarviðtalið" sem Gunnarsstaða-Móri fer í og ekki það síðasta en öll eiga þau það sameiginlegt að hann talar mikið um hvað hann hafi nú tekið við erfiðu búi og það sé nú allt saman íhaldinu og framsókn að kenna og verkefnið sé alveg gríðarlegt og alveg svakalega erfitt en hann nefnir ALDREI HVAÐ hann ætli að geraHvað á lengi að láta hann komast upp með að hafa þjóðina að fífli??????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sammála þér, Jóhann. Steingrímur er ennþá í Bretavinnunni, og slíkir menn eiga ekki að fá heilu Kastljósþættina til að fá truflunarlítið að dæla yfir þjóðina illa þegnum áróðri. Staða hans hefur aldrei verið valtari, vegna hans eigin aðgerðarleysisstefnu í okkar brýnustu málum, og var þá virkilega tilefni til að gefa honum færi á að réttlæta sig með sínum refslega hætti?! – Með góðri kveðju,

Jón Valur Jensson, 7.10.2010 kl. 10:04

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Rétt: Þetta "viðtal" var í sama farvegi og flest eða öll þau viðtöl sem Sjónvarpið átti við Davíð Oddsson á hans valdatíð.

"Viðtal! ekkert mál. Ég læt aðstoðarmann minn semja spurningar og svo fer ég vandlega yfir þær. Þetta tekur ekki nema stund úr degi og svo lætt ég ykkur vita þegar ég er tilbúinn. Þið megið velja spyrilinn en ég fer fram á að hann fái ráðrúm til að kynna sér spurningarnar í svona 10 mín. áður en viðtalið fer fram. Það lítur betur út sko!"

Auðvitað sáu allir í gegn um þetta. Steingrímur var í hlutverki skólastjórans sem er að halda fyrirlestur um tilgang námsannarinnar.

Árni Gunnarsson, 7.10.2010 kl. 20:13

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll, þetta er sérgrein pólitíkusa að geta talað út í eitt en í raun segja ekki neitt. Ég er sammála þér Jóhann að það kom mikið lítið út úr þessu viðtali við Steingrím.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 7.10.2010 kl. 22:43

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, ég er svo sannarlega sammála þér núna, eigum við bara ekki að bíða þolinmóðir, á meðan allt sýður upp úr í þjóðfélaginu??????? Og þá fær Gunnarsstaðar-móri að fjúka.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 7.10.2010 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband