SORGARSAGA FRÁ UPPHAFI TIL ENDA....................

Og vegna tregðu hjá yfirvöldum og þeim sem ákváðu að ráðist yrði í þessa framkvæmd, mönnum gengur illa að viðurkenna að mistök hafi verið gerð þarna, sést ekki fyrir endann á þessu bulli.  Þeir sem koma til með að TAPA mestu eru Vestmannaeyingar sjálfir, því á meðan er verið að "lappa" upp á þetta KLÚÐUR verða ENGAR samgöngubætur fyrir Vestmannaeyjar.  Það vekur bara furðu mína hversu lítið Vestmannaeyingar sjálfir hafa tjáð sig um þetta, er kannski ekki eins mikið tjáningarfrelsi eins og maður hélt????
mbl.is Ekki opnað fyrir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða endemis bull er þetta, þetta er samgöngubót fyrir eyjamenn sem og aðra sama þó það þurfi að dæla uppúr höfninni af og til. Biðin núna, hefur með það að gera að Perlan var biluð, og að hún er nottla ekki á staðnum heldur hefur þurft að flytja hana til landeyjahafnar í þessi tvö skipti sem þetta hefur gerst. Fyrir utan það, að enginn gerði ráð fyrir gosi - og að Herjólfur er ekki ætlaður fyrir þessa höfn heldur stendur til að minna skip verði notað fyrir þessa höfn. þetta eru engin mistök, fúlir reykvíkingar sem hafa ekkert betra að gera en að sötra latte og súpa hvaða æsifrétt sem tilkemur - hafa sömu skoðun og þú - byggða á þekkingarleysi.

Adeline (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 11:32

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Adeilene, reyndu ekki að bera það á borð að ég þekki ekki til aðstæðna þarna, af skrifum þínum að dæma virðist þekkingarleysið vera hjá þér.  Ef þetta er samgöngubót þá er tunglið úr osti og himinn fjólugulgrænn.  Það STÓÐ til að fá annað skip en því var slegið á frest um óákveðinn tíma að fá það vegna kreppunnar,,,,,  kannski ÞÚ vitir hvenær það kemur??????

Jóhann Elíasson, 13.10.2010 kl. 12:09

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll Jóhann nákvæmlega og innlit Adeline sem segir að eingin hafi gert ráð fyrir gosi er furðuleg fullyrðing sem stenst ekki!

Sigurður Haraldsson, 13.10.2010 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband