ÞAÐ ER EKKI Í LAGI MEÐ MENN.................

Hversu oft þarf að ítreka fyrir mönnum að þegar verið er að stjórna bíl eða einhverju öðru ökutæki þarf að vera með FULLA athygli og meðvitund, en í þessu tilfelli er alveg greinilegt að eitthvað mikið hefur vantað upp á að þessi atriði hafi veið til staðar.  En svo kemur ekki fram í fréttinni hvort lögreglubifreiðin hafi verið með forgangsljósin á en hafi svo verið er brot mannsins alveg vítavert og að mínu mati þá er refsingin of VÆG, það virðist vera að eina sem menn skilja er refsing sem kemur verulega við fjárhaginn, til þess að þeir fremji ekki sama afbrot aftur.  Þegar ég bjó í Noregi komst ég að því að sektir vegna umferðarlagabrota voru tekjutengdar en þó með ákveðnu lágmarki og gaf þetta MJÖG góða raun.
mbl.is Níutíu þúsund krónur fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Tekjutengdar sektir já það er ekki vitlaust því að ef fjárvana einstaklingur fær svona sekt þá getur það tekið af honum lífsviðurværi í talsvert langan tíma! Einnig vantar í fréttina eins og þú sagðir að hvort lögreglan hafi haft forgangsljósin á það skiptir alveg gríðarlegu máli!

Sigurður Haraldsson, 10.11.2010 kl. 10:58

2 identicon

Er þetta ekki einum of hjá þér ..... ?

Auðvitað á ekki að taka vægt á svona málum ef um margítrekuð broter að ræða.  Hefur þú aldrei ekki sýnt nógu mikla aðgæzlu á ákveðnum tímapunkti við akstur ? Held að við gerum það öll flest á einhvertímann í lífinu,  það er bara í mannsins eðli að vera stundum utan við sig, aftur á móti erum við hin kannski bara svo "heppin" að það gerist ekki fyrir augum lögreglu :-)

Held að tekjutenging myndi ekki gera mikið gagn hér á landi enda meginþorri landans tæknilega gjaldþrota  og með laun undir fátækramörkum.

Solla Bolla (IP-tala skráð) 10.11.2010 kl. 11:04

3 identicon

Finnst nú ólíklegt að maðurinn sem var á sextugsaldri í sunnudagsbíltúr með eiginkonu sinni og aldraðari tengdamóður hafi verið í einhverjum háskabíltúr

http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S201000542&Domur=3&type=1&Serial=1&Words=

Solla Bolla (IP-tala skráð) 10.11.2010 kl. 11:09

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Solla Bolla" eða hvað sem þú nú heitir, það er greinilegt að þú náðir ekki innihaldi greinarinnar.  Jújú ég hef örugglega gerst sekur um að hafa sýnt augnabliks aðgæsluleysi en um það er ég EKKI að fjalla.  Heldur um það að maðurinn virðist heldur betur hafa verið annars hugar og svo til að "bæta gráu ofan á svart" þá hefur hann ekki ekki sætt sig við sektina sem hann fékk og farið með málið fyrir dómsstóla með þessum afleiðingum.  Og talandi um menn á sextugsaldri, þá er ég á sextugsaldri og tengdamóðir sem er rétt um sjötugt telst nú ekki vera "öldruð".

Jóhann Elíasson, 10.11.2010 kl. 11:24

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehe Jóhann, ég er hátt á sjötugsaldri eins og menn segja, og ég yrði heldur betur súr ef ég væri kölluð öldruð.   Annars finnst mér þetta á fimmtugs, sextugs aldrei eitthvað vera út í hött.  Af hverju má ekki bara segja 21 árs gamall maður í stað þess að segja maður á þrítugsaldri.   Í huganum gerum við okkur mynd, og sú mynd skekkist alltaf í þessum tilvikum. 

Maðurinn hefði auðvitað átt að borga sína sekt þegjandi og hljóðalaust. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2010 kl. 13:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband