STÆRSTA HVALVEIÐIÞJÓÐ HEIMS REYNDI AÐ BEYTA "JAPÖNUM" FYRIR SIG TIL AÐ ÞVINGA ÍSLENDINGA TIL AÐ DRAGA ÚR HVALVEIÐUM!!!!

Ekki er nokkur þjóð í heiminum, sem veiðir annað eins magn af "smáhvölum" og Bandaríkjamenn, þeir skipta þúsundum ef ekki tugum þúsunda höfrungarnir, sem lenda í reknetum í Amerískri lögsögu og er hent DAUÐUM og HÁLFDAUÐUM aftur í sjóinn.  Hér á landi eru hvalirnir veiddir og nýttir.  Hefur það einhvers staðar verið samþykkt að Bandaríkin ættu að vera einhvers konar alheimslöggur og um leið að ákveða hvað mætti og hvað ekki????  Annars var um það frétt, fyrir nokkru síðan að Árni Finnsson og félagar í "Náttúruverndarsamtökum Íslands", hafi gengið á fund Ameríska sendiherrans á Íslandi og BEÐIÐ um að Íslendingar yrðu beittir einhvers konar þvingunum vegna hvalveiða.   Kannski er þetta árangur þessarar ferðar þessa LANDRÁÐFÓLKS????
mbl.is Vildu að Japanir þrýstu á Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Durtur

Svo á það til að gleymast í þessu öllu að Bandaríkjamenn veiða líka hval; 2006 drápu þeir jafnmargar skepnur og við: 39 stykki, en 2007 voru þeir komnir í 63. Þetta er hvorki samsæriskenning né eitthvað leyndarmál, bara bláköld staðreynd.

Durtur, 3.1.2011 kl. 17:22

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir að benda á þetta "Durtur", ég bara vissi þetta ekki.

Jóhann Elíasson, 3.1.2011 kl. 18:05

3 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, ég tek undir hvert orð í þessum pistli þínum. Það er annars merkilegt að okkar ráðamenn skuli ekki svara Bandaríkjamönnum fullum hálsi, þegar vitað er að þeir drepi þúsundir smáhvala og einnig stórhveli  í Alaska ef ég man rétt.

Kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 3.1.2011 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband