ELDGOSAASKAN ÆTLAR AÐ DUGA LENGI HJÁ ÞEIM SEM AFSÖKUN...........

Alveg frá því að vandræðin vegna Landeyjahafnar byrjuðu, hefur því verið haldið fram að AÐALORSÖKIN fyrir öllu veseninu væri gosið í Eyjafjallajökli.  Nú þegar er að verða EITT ÁR frá því að goslokin urðu, þá er enn verið að hamra á þessu gosi og nú er það því að kenna að Herjólfur hefur EKKI GETAÐ KOMIST Í HÖFNINA Í ÞRJÁ MÁNUÐI (til hamingju með daginn Wizard ) og nú tekur Ögmundur undir vitleysuna.  Með þessu er bara verið að undirbúa enn meiri FJÁRAUSTUR í þennan SANDKASSAí stað þess að koma samgöngumálunum milli Lands og Eyja í almennilegt stand í eitt skipti fyrir öll.............
mbl.is Reynsluleysi á þátt í töfunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já einmitt

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.4.2011 kl. 18:05

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

mikið sammála þessu Jóhann !!!!/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 12.4.2011 kl. 21:57

3 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Rétt hjá þér Jóhann.

Þetta mesta flopp Íslandssögunnar í samgögumálum (og er þó af nógu að taka þar á bæ) á eftir að verða okkur dýrt. Þessi svokallaða höfn verður aldrei nothæf nema í mesta lagi nokkrar vikur yfir hásumarið. Hún mun þó líklega verða til þess að; að því komi að takmarka þurfi fjölda gesta á þjóðhátíð og verður þá bleik brugðið. Skynsamlegast held ég að verði í framtíðinni að leifa henni svo bara að lokast sjálfkrafa að hausti eins og hverjum öðrum fjallvegi, t.d. Hrafnseyrar og Dynjandisheiðum fyrir vestan, og ekki reynt að halda opnu fyrr en snjóa leysir. Það á við um þær heiðar og því ekki þessa höfn? Það er þó til "hjáleið" fyrir höfnina sem er um Þorlákshöfn en það á ekki við um heiðarnar fyrir vestan, þar ekki um neina "hjáleið að ræða.

Viðar Friðgeirsson, 12.4.2011 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband