ÉG HELD AÐ HÆTTAN Á VANMATI SÉ EKKI MIKIL.......................

Ég held aftur á móti að hættan á því að Austurríkismenn séu fullgóðir fyrir "strákana okkar" sé mun meiri.  En við verðum bara að vona það besta og styðja strákana okkar í dag.  Ég held að Arnór Atlason hafi verið að útskrifast sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri í gær og sigur í dag væri ekki ónýt útskriftargjöf til hans.......
mbl.is Vonar að kveðjuleikurinn sé ekki í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Miðað við lýsinguna á Sport.is þá er Austurríska landsliðið gott og ég þekki einnig nokkra leikmenn í þessari grein: "

Þekktustu leikmenn Austurríkis ættu að vera íslenskum handknattleiksáhugamönnum vel kunnir. Robert Weber hægri hornamaður Austurríkis var t.a.m. annar markahæsti leikmaður nýaftaðinnar leiktíðar í Þýskalandi með 242 mörk í 34 leikjum sem gera 7,1 mark að meðaltali í leik. Konrad Wilczynski, sem hefur verið einn besti vinstri hornamaður þýsku deildinnar síðastliðinn tímabil, hefur leikið undir stjórn Dag Sigurðssonar hjá Füche Berlin síðastliðinn tímabil, en hefur nú róað á önnur mið og haldið til Austurríkis í sitt uppeldisfélag, West Wien. Svo er þeirra besti leikmaður sem allt snýst í kringum í sóknarleik þeirra, Viktor Szilagyi, en hann er frábær leiktsjórnandi sem er mjög klókur og hefur lausnir við nánast öllu. Minna þekktir leikmenn í Austurríki eru Roland Schlinger sem er öflug vinstri skytta sem eflaust margir muna eftir frá Evrópumeistaramótinu 2010 í Austurríki, Janko Bozovic hægri skytta sem Austurríki loksins fann, en þeim hafði vantað örvhenntan leikmann í hægri skyttu stöðuna lengi, línumaðurinn Patrick Fölser sem er gríðarlega líkamlega sterkur og er einnig góður varnarmaður og svo loks markvörðurinn Nikola Marinovic sem getur verið ómetanlegur fyrir Austurríki, en hann á það til að loka markinu."

Guðmundur Arnar (IP-tala skráð) 12.6.2011 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband