ÚTLIT FYRIR AÐ ICES(L)AVE-REIKNINGARNIR GREIÐIST AÐ FULLU.............

Það verður þá bara um "formið" á þessum klafa sem EFTA-dómstóllinn fjallar þá um.  En flestir eru nú á því að EKKI hafi verið RÍKISÁBYRGÐ á þessum innistæðum enda var þarna um gjörðir EINKABANKA að ræða og eftir því sem okkur almenningi var sagt þá voru það helstu rökin fyrir einkavinavæðingunni á sínum tíma AÐ ÞÁ BÆRI ÍSLENSKA RÍKIÐ EKKI LENGUR NEINA ÁBYRGÐ Á BÖNKUNUM...............
mbl.is Endurheimta fé frá falli Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það verður reyndar sífellt meira spennandi möguleiki ef EFTA dómstóllinn skyldi nú staðfesta að það skuli vera ríkisábyrgð á innstæðutryggingunum.

Þá væru belgískir og franskir skattgreiðendur allt í einu orðnir ábyrgir fyrir banka sem Al Thani fjölskyldan er nýbúin að kaupa, og er margföld fjárlög Belgíu að stærð.

Og hvað ætli gerist þegar fjárfestar uppgötva að belgíska ríkið hefur í raun enga burði til að ábyrgjast innstæður þeirra?

Þeir fyllast skelfingu, taka út innstæðurnar, bankinn fer á hausinn og ríkið með. Ísland 2008, Belgía 2012.

Þið vitið hvað gerist alltaf skömmu eftir að Al Thani fjárfestir í einhverjum banka, er það ekki?

Guðmundur Ásgeirsson, 7.4.2012 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband