UMRÆÐAN UM GJALDMIÐILSMÁLIN ALGJÖRLEGA Á VILLIGÖTUM................

Aðallega eru það LANDRÁÐAFYLKINGARMENN sem eru að tala um að krónan sé ónýtur gjaldmiðill (kannski er það eitt síðasta örþrifaráðið til að INNLIMA landið í ESB), sé gjörsamlega rúin öllu trausti og eitthvað fleira á nú að vera að krónunni.  En hvernig stendur á þessu????  Nú lifir krónan ekki sjálfstæðu lífi né tekur neinar sjálfstæðar ákvarðanir og ég veit ekki til þess að hún framkvæmi nokkurn skapaðan hlut.  Nei það er vegna þess að efnahagsstjórnunin hér á landi hefur algjörlega verið í molum frá lýðveldisstofnun að ástand krónunnar er eins og það erEru þeir sem hæst tala um að skipta um gjaldmiðil virkilega svo einfaldir að halda að með þeirri aðgerð lagist efnahagsstjórnunin á Íslandi????????  Treysti Forsætisráðherra sér ekki til að stýra efnahagsmálunum með þeim gjaldmiðli, sem þjóðin hefur valið sér, þá er sá Forsætisráðherra ekki starfi sínu vaxinn og á að segja af sér hið fyrsta og sjá til þess að hæfara fólk taki við starfinu..........
mbl.is Einhliða upptaka veikasti kosturinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Heyr Heyr!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2012 kl. 22:48

2 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Það er rétt sem þú bendir á Jóhann, það er efnahagsstjórnin sem skiptir máli sama hvað gjaldmiðillinn heitir.

En það er alltaf kostir og gallar við alla hluti, kostirnir við krónuna eru þeir, að hún bæði aðlagar sig að efnahagslífinu og heldur atvinnustiginu hærra en það væri ef við hefðum annan gjaldmiðil.

Á móti kemur vitanlega að það verður dýrara að kaupa innfluttar vörur og verðbólgan er hærri en í mörgum löndum.

Frekar vill ég lifa við meiri verðbólgu og dýrari nauðsynjavörur heldur en að horfa upp á atvinnuleysi, því atvinnuleysi er mikið félagslegt vandamál og hátt atvinnustig verður seint metið til fjár.

Jón Ríkharðsson, 30.4.2012 kl. 06:41

3 identicon

Jón, verðbólgan er ekkert krónulögmál, verðbólgan er afleiðing verðtryggingar og neikvæðs viðskiptajöfnuðar. Með því að afnema verðtrygginguna ertu kominn langleiðina með að útrýma sjálfvirkum hækkunum á vörum.

Gulli (IP-tala skráð) 30.4.2012 kl. 16:31

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gulli, þetta er nú ekki alveg svona einfalt.  Hvort kemur á undan hænan eða eggið????  Verðbólgan kemur fyrst og fremst til af því að við eyðum meiru en við öflum.  Verðbólga getur ekki orðið afleiðing verðtryggingar og vörur og þjónusta hækka ekki sjálfvirkt.

Jóhann Elíasson, 30.4.2012 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband