ÞETTA ER SKÍTLEG UMRÆÐA...............

En sé þetta staðreynd, sem ég er ekkert að draga í efa, þá er lausnin á þessu "skemmtilega vandamáli"  (eigendur þessara staða sjá nú ekkert skemmtilegt við þetta) bara afskaplega einföld.  Þessir staðir innheimta bara nokkurs konar "hafnargjöld" það verður eitthvað lágmarksgjald sem hver fólksflutningabifreið verður að greiða á hverri "stoppistöð" og þar með væri þetta vandamál úr sögunni...............................
mbl.is Eru aðstöðugjöld á salernum málið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Og síðan eru sumir sem gefa út gjaldskrá og aðrir ekki en rukka samt...

Kamargjald er innheimt af einstaklingum á börum í Evrópu, hvað er að því að það sé innheimt á samskonar hátt í sjoppu á Íslandi?

kv.

Sindri Karl Sigurðsson, 24.7.2012 kl. 22:01

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég myndi alveg borga 100 kall fyrir að fá að pissa í klósett, heldur en að þurfa að fara út í móa ef mér væri mikið mál. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.7.2012 kl. 22:20

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held einmitt að þetta sé málið; Fólk gerir sér alveg grein fyrir því að það kostar að halda úti þessari þjónustu og er alveg tilbúið að greiða fyrir hana.  Þetta er bara stormur í vatnsglasi......................

Jóhann Elíasson, 24.7.2012 kl. 22:32

4 identicon

Í Þýskalandi þá er rukkað á klósettin í vegasjoppum, þar er borgað í sjálfsala sem opnar hlið fyrir salernisfarann og lætur hann fá miða, þegar erindinu á salernið er lokið fæst salernismiðinn endurgreiddur ef verslað er í sjoppunni. 

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 24.7.2012 kl. 23:09

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sjálfsagt,það þarf að hirða klósettin og hafa nægan pappír og handklæði. Mér finnst snyrtingar hafa tekið miklum stakkaskiptum til hins betra þar sem ég hef verið á ferð.

Helga Kristjánsdóttir, 24.7.2012 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband