HVAR ER SAMKEPPNISEFTIRLIITIÐ NÚNA?????????

Þurfa bankarnir ekki að sýna fram á að úttekt í hraðbanka hafi kostnað fyrir bankana í för með sér???  Og hvernig er hægt að segja að ég sem viðskiptavinur Íslandsbanka valdi bankanum EKKI kostnaði ef ég tek út fjármuni í hraðbanka sem tileyri bankanum en ef ég tek út í hraðbanka sem tilheyrir Arion banka þá er ég orðinn rándýr andskoti?????  En miðað við þann hagnað sem er af starfsemi bankanna, þá veltir maður fyrir sér hvort þeir þurfi á því að halda að taka gjald fyrir þessa sjálfsögðu þjónustu????
mbl.is Rukkað fyrir þjónustu hraðbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er það ekki merkilegt í villtri samkeppni bankanna að þeim skuli hafa dottið þessi gjaldtaka í hug sama daginn.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.10.2012 kl. 12:48

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að það velkist enginn í vafa um það að þarna er um samráð að ræða, Axel og síðast þegar ég vissi er samráð, á hvaða sviði sem er, ÓLÖGLEGT.  En það sem þessir fuglar horfa til er að það er erfitt að SANNA það................

Jóhann Elíasson, 16.10.2012 kl. 13:06

3 identicon

Bankarnir Þurfa ekki að sýna fram á að úttekt í hraðbanka hafi kostnað fyrir bankana í för með sér. En hraðbankar eru ekki ókeypis og enginn þjónustar þá í frítíma sínum. Bankarnir eru að selja þjónustu, eins og mörg önnur fyrirtæki, þar sem þeim er frjálst að verðleggja þjónustuna eins og þeim sýnist. Ekki veit ég hvaðan sá misskilningur er kominn að bankar séu og eigi að starfa eins og góðgerðarstofnanir. Og að þeir eigi jafnvel að veita viðskiptavinum annarra banka ókeypis þjónustu með bros á vör. Eins hefur enginn beðið þá um að hækka vexti af lánum í skiptum fyrir lægri þjónustugjöld. Samráð er ekki endilega ólöglegt en verðsamráð er það oftast.

sigkja (IP-tala skráð) 16.10.2012 kl. 15:06

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þess má geta að Samkeppniseftirlitið hefur allavega tvö fjármálafyrirtæki til rannsóknar fyrir meint brot á Samkeppnislögum, vegna erinda sem Hagsmunasamtök heimilanna og félagsmenn hafa beint til eftirlitsins.

Það er hinsvegar ótengt þessu máli með hraðbankana, sem verður vonandi skoðað líka ofan í kjölinn.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.10.2012 kl. 15:15

5 identicon

Það er þar að auki rangt að Arion innheimti hundrað kall því þeir heimtuðu 110 kr.

af mér um síðustu helgi.

Nanna Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 16.10.2012 kl. 15:18

6 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Æi hvað það er nú krúttlegt og gott að heyra að blessaðir bankarnir megi innheimta návæmlega það sem þeim "sýnist" sbr. sigkja hér að ofan. Enda eru þeir vanastir því að gera það esm þeim "sýnist" og komast upp með það.

Kristján H Theódórsson, 16.10.2012 kl. 15:39

7 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Afsakið stafavíxl

Kristján H Theódórsson, 16.10.2012 kl. 15:40

8 identicon

Ljóst er að markmiðið er að láta þá sem nýta sér þessa þjónustu standa byr af kostnaðinum, enda er það meira og minna sama fólkið.

Sara (IP-tala skráð) 16.10.2012 kl. 20:31

9 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Hér er ekkert virkt samkepniseftirlit frekar en fyrir firra hrunið 2008!

Sigurður Haraldsson, 16.10.2012 kl. 23:52

10 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það kostar að halda úti hraðbanka... það er nú bara þannig.

Sleggjan og Hvellurinn, 17.10.2012 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband