ALGJÖRT "AUGNAKONFEKT"..................

Þó svo að baráttan um fyrsta sætið væri eiginlega ekki til staðar nema rétt í byrjun og koðnaði svo alveg niður eftir að DRS búnaðurinn bilaði hjá Alonso og hann varð að taka "auka" viðgerðarhlé vegna þess.  Þá var mikil barátta um sætin á eftir og mjög mikið um stórglæsilega framúrakstra og alveg gríðarleg barátta.  Manni fannst nú stundum alveg nóg um baráttuna, sérstaklega þegar McLaren liðsfélagarnir Perez og Button börðust um stöðu á brautinni þar munaði littlu að stórslys yrði (Perez hefði getað keyrt þá báða út úr keppninni) það var svolítið skondið að heyra Button kalla í stöðina að það yrði að kæla Perez niður.  Að fylgjast með slagnum milli Webbers og Hamiltons um fimmta sætið, sem Hamilton tókst að ná á síðasta hring, var alveg magnað (þá var ég ánægður með það að vera með frekar sterkt hjarta en ég verð að viðurkenna að sá slagur tók verulega á taugarnar).  Bæði Alonso og Webber keyrðu sinn 200 kappakstur og það er nokkuð víst að báðir hefðu viljað að hann færi öðruvísi.  En hvað sem öllu líður þá var þessi keppni með þeimm skemmtilegri sem ég hef séð lengi.........
mbl.is Vettel vann vandræðalaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Flottur akstur í dag.  Ég hef trú á að Ísmaðurinn nái titlinum í ár, góður ökumaður sem fer vel með dekk og bíl ólíkt því sem áður var, þá var hann þjösni.

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 21.4.2013 kl. 21:37

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eftir að Raikkonen kom aftur í formúluna er hann allt annar maður, hann nær öllu því besta út úr bílnum og hann er orðinn einn allra áreiðanlegasti ökumaðurinn það er af sem áður var að það lá við að það væri stórfrétt ef honum tókst að klára keppni en nú er það stórfrétt ef eitthvað bilar hjá honum og þá á hann yfirleitt ekki sökina.  Já ég hef fulla trú á honum en ég held að hann vinni ekki Vettel er sá stóri núna og verður eitthvað áfram en Raikkkonen verður ofarlega.................

Jóhann Elíasson, 21.4.2013 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband