ÞÁ VERÐUR ALÞINGI AÐ GRÍPA TIL ÞESS AÐ STÖÐVA ÞENNAN HRÁSKINNALEIK.....

Ef þetta mál varðaði ekki alla landsmenn, myndi ég bara segja: "Ja, Reykvíkingum var nær að kjósa þá yfir sig sem höfðu lýst því yfir, í andstöðu við 70% borgarbúa, að þeir ÆTLUÐU að koma flugvellinum úr Vatnsmýrinni, hvað sem tautaði og raulaðiHélt fólk að þetta lið skipti um skoðun á kosninganóttinni, bara við það að verða kosið?"  Nú er sennilega helst að vona að Alþingi taki til sinna ráða og stöðvi ætlanir þessa hryðjuverkafólks.....


mbl.is Bíða ekki eftir Rögnunefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vinkona þín, Vigdís Hauksdóttir heldur því fram að SjálfstæðisFLokkur og Framsóknarflokkur hafi fengið þingmeirihluta vegna stefnu þeirra gagnvart ESB og vilja þeirra til að draga til baka ESB umsóknina.

Með sömu rökum, eða réttara sagt rökleysu; væri hægt að segja að Samfylking og Björt framtíð hafi fengið meirihluta atkvæða í Reykjavík vegna stefnu þeirra í flugvallamálinu.

Svo er rétt að taka það fram að allt þetta rifrildi um flugvöllinn er óþarft, það er búið að ákveða að flugvöllurinn fari, nýtt aðalskipulag Reykjavíkurborgar sýnir fram á það og kosningar sem fóru fram 2001 sýndu vilja höfuðborgabúa þar sem meirihlutinn vildi flugvöllinn burt.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 18.2.2015 kl. 16:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi, á hvaða lyfjum ertu eiginlega????  Fyrir það fyrsta þá þekki ég ekkert til Vigdísar Hauksdóttur í öðru lagi er ekki með nokkru móti hægt að bera flugvallarmálið og afstöðu til ESB saman, í þriðja lagi er nokkuð skrítið hjá þér að vísa til niðurstöðu kosninga frá 2001 því síðan þá hefur farið fram könnun meðal borgarbúa sem sýndi fram á að 70% þeirra vildu hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni.  þarna ertu bara að undirstrika hversu alvarlega "brenglaður" þú ert og toppstykkið á þér er með alvarlegum vanköntum og það að þú hefur verið ansi aftarlega í röðinni, þegar Guð úthlutaði vitsmunum og almennri skynsemi................

Jóhann Elíasson, 18.2.2015 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband