ÞÁ ER EKKI SÍÐUR LÖNGU TÍMABÆRT AÐ LEGGJA TIL AFGLÆPAVÆÐINGU NEYSLU EITURLYFJA

En því miður virðist vera svo að fíklar eigi sér mjög fáa talsmenn, en sem betur fer fjölgar þeim.  Það er mín skoðun, að ef vændi værir löglegt og starfsemin uppi á borðinu, verði einfaldara að hafa hendur í hári þeirra sem ætli sér að hagnast  á því á ólöglegan máta, sama er um eiturlyfin það á ekki að vera að eltast við þá sem eru svo ólánssamir að ánetjast þessu, heldur þá sem flytja vöruna inn og dreifa henni.  Svo get ég ekki með nokkru móti séð að það sé neitt ólöglegt við það að kaupa þessa þjónustu frekar en aðra þjónustu og ég get ekki séð að fólk eigi nokkuð að þurfa að fara í felur með það að svo sé.


mbl.is Leggja til afglæpavæðingu vændis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki verið að eltast við þá sem eru svo kærulausir og heimskir að ánetjast eiturlyfjum, heldur þá sem flytja þau inn og dreifa. Og árangurinn er enginn. Því meðan markaðurinn, eftirspurnin, er látin í friði þá rekur hagnaðarvonin marga út í að stunda verslun. Væri verið að eltast við þá sem neyta með mælingum á þvagi og blóði, á vinnustöðum og í skólum, og löngum dómum í meðferð hefði það áhrif á eftirspurnina. Færri tækju sjensinn á að prufa ef mæling dögum eða vikum seinna gæti kostað margra mánaða meðferð. Og ánetjaðir væru í meðferð og endurhæfingu. Markaðnum væri rústað.

En meðvirkni okkar og skaðleg samúð með fíklum hefur komið í veg fyrir að beitt sé áhrifaríkum vopnum í baráttunni. Og því er gáfulegra að gefa þetta frjálst og hafa af þessu tekjur en að beita aðferðum sem kosta mikið og skila engum árangri.

Með vændið hafa bönn aðeins verið til skaða og kallað á feluleik og undirheimastarfsemi. Þetta er ekki virðuleg atvinna en ætti samt að vera meðhöndluð eins og aðrar atvinnugreinar.

Ufsi (IP-tala skráð) 12.8.2015 kl. 12:37

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ufsi, þú skalt aðeins kynna þér málin áður en þú ferð að bulla einhverja steypu.  Ég veit um marga sem hafa verið fangelsaðir fyrir að neyta eiturlyfja.  Ég held að samúð með fíklum sé alls ekki skaðleg alveg eins væri hægt að segja að við ættum ekki að aðstoða þá sem minna mega sín að einu eða neinu leiti.

Jóhann Elíasson, 12.8.2015 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband