"HVAÐ VAR VERIÐ AÐ FELA"???????

Þessi orð lét Björt Ólafsdóttir falla í "Silfrinu".  En eitt hefur ALDREI komið fram í umræðunni, en það virðist vera að forráðamenn Stundarinnar og Reykjavík Media og þar með lögmenn á þeirra vegum, vilji ekkert umfjöllun um það hvernig viðkomandi gögn voru fengin.  NÆR FJÖLMIÐLAFRELSIÐ SVO LANGT AÐ ÞAÐ SÉ EKKI REFSIVERT AÐ STELA GÖGNUM OG "BÚA TIL FRÉTTIR" ÚR ÞEIM??????


mbl.is Íhuga að höfða skaðabótamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þegar tekið er afrit af einhverju en frumritið skilið eftir á sínum stað, hefur engu verið stolið. Hitt er svo annað hvort afritunin er heimil.

Héraðssaksóknari rannsakaði þennan leka og ákvað að lokum að fella málið niður vegna sönnunarskorts.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.2.2018 kl. 17:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, þú hlýtur að vita það að þó sannanir skorti, er ekki þar með sagt að "ekkert ólöglegt hafi átt sér stað"...

Jóhann Elíasson, 5.2.2018 kl. 23:32

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég var einfaldlega að benda á það var heilmikil umfjöllun um það "hvernig viðkomandi gögn voru fengin" eins og kom fram í færslunni þinni, en ekki hvort eitthvað var ólöglega gert.

Engum gögnum var stolið heldur voru þau afrituð. Ef það var lögbrot þá kemur það fjölmiðlafrelsi ekkert við því það braust enginn fjölmiðlamaður inn í Glitni til að afrita þessi gögn heldur var það einhver aðili sem er tengdur Glitni og hafði aðgang að þessum gögnum sem afritaði þau og lak þeim til fjölmiðla.

Svo dæmi sé tekið sem þú kannski þekkir þá stálu Woodward og Bernstein engum gögnum um Watergate hneykslið heldur var upplýsingum komið til þeirra af hálfu innanbúðarmanns.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.2.2018 kl. 23:54

4 identicon

Eigum við þá engan rétt á að fá að vita hvaða starfsmaður banka afritar trúnaðargögn um viðskiptavini bankans og afhendir fjölmiðlum? - Eða selur fjölmiðlum? Ekki vil ég skipta við þann banka sem hefur þannig fólk innan sinna raða. 

Sérstaklega þegar fjölmiðlamenn eru ekki vandari að virðingu sinni en sá sem starfaði á Stundinni og varð uppvís að því að selja stolið kjöt í tugkílóavís. Það er ekki mjög traustvekjandi og sýnir að blaðasnápar eiga ekki að hafa rétt til að valsa um allt og valta yfir allt og alla óáreittir. 

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2018 kl. 08:22

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það að afrita gögn og fara með er að STELA.  Svona málflutningur er engum bjóðandi og að löglærður maður skuli gera það segir nokkuð mikið um á hvaða "plani" siðferðið er.........

Jóhann Elíasson, 6.2.2018 kl. 08:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband