VÆRI EKKI RÁÐ HJÁ HONUM AÐ FARA AÐ FYLGJAST MEÐ ÞVÍ SEM ER AÐ GERAST OG ÞAÐ AF EINHVERRI ALVÖRU????

Hann talar um loftslagsbreytingar af mannavöldum og hefur miklar áhyggjur af þeim og ræðst af "alefli" gegn því sem er í gangi.  En hefur hann ekkert spáð í "pólskiptin" sem eru í gangi og hafa verið undanfarið, í dag er NORÐURPÓLLINN staddur í Úralfjöllunum og talið að hann komi til með að stoppa í Indlandshafi?  En hann fylgir meginstraumnum og trúir alfarið á að þessar loftlagsbreytingar séu eingöngu af mannavöldum.  Og hvað gerir hann?  Jú það er efst á forgangslistanum að það verði bannað að flytja inn dísil og bensín bifreiðar eftir árið 2030.  Halló bifreiðaumferð er með um 6% af heildarloftslagsmengun Íslands.  Þetta heitir að taka á málunum af ákveðni og festu. cool laughing  Ekki nóg með það, en þá ætlar þessi fyrrum framkvæmdastjóri og formaður LANDVERNDAR að láta "troða" þessari þvælu í sig um loftlagsbreytingar af mannavöldum og núna fá fyrrverandi félagar og vopnabræður í LANDVERND AÐ LEIKA "LAUSUM HALA"og umhverfisráðherra spilar með.  Ef hann ætlar að taka á loftslagsmálunum ætti hann að huga að FLUGINU en þaðan kemur megnið af útblæstri okkar Íslendinga og hann ætti að GRÓÐURSETJA EINHVERN VISSAN FJÖLDA TRJÁA EFTIR HVERJA FLUGFERÐ SEM HANN FER.  En að sjálfsögðu ætti hann að hætta að ferðast til útlanda.  Sama má segja um alla ríkisstjórnina, þannig er alveg hægt að segja það að TÆKNIN er orðin þannig að bókstaflega allt flandur um heiminn er ÓNAUÐSYNLEGT.  Ekki get ég sagt að álit mitt á Umhverfisráðherra hafi aukist eftir að ég las þetta viðtal.............


mbl.is Útilokar ekki neyðarástandsyfirlýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Ráðherrar í ríkisstjórninni skiptast í tvennt:

  1. Hálfvitana sem trúa bullinu um að eðlilegar loftslagsbreytingar séu af mannavöldum.

  2. Lygarana sem vita sannleikann en sem halda uppi lygaáróðrinum vegna eiginhagsmuna.

Í báðum tilvikum eru þeir (þau) óhæf(ir) í starfi.

Aztec, 5.5.2019 kl. 11:13

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það var og "Aztec".  Þetta var skýrt og skorinort og ég verð að segja að ég er þessu sammála.....

Jóhann Elíasson, 5.5.2019 kl. 11:23

3 Smámynd: Aztec

Hlýnunarsvindlið snýst alls ekki um loftslagið, enda hefur koltvíildi engin áhrif á hitastigið (því er öfugt farið). Þetta snýst allt um tilfærslur á fjármunum og gróða, bæði styrkjaveitingar í einskisnýt verkefni svo og kolefniskvótaverzlun. Íslenzku orkufyrirtækin taka þátt í þessum sirkus með kolefniskvótaverzlun, sem klárlega gengur gegn hagsmunum þjóðarinnar, því að afleiðingin er að á alþjóðavettvangi er 73% af íslenzkri raforku skráð sem framleidd með kjarnorku(!!) og jarðefnaeldsneyti og þar með gerir ímynd landsins sem "grænt" að engu (sbr. tvær greinar um málið í Bændablaðinu). Og ekki kemur gróði orkufyrirtækjanna af þessari verzlun neytendum til góða frekar en fyrri daginn (sbr. OR í tíð gnarristanna).

Auðvitað eru gróðursetningar á trjám jákvætt, en EKKI vegna kolefnisjöfnunar, sem jú er tóm vitleysa, heldur vegna þess að flestallur trjágróður fegrar landið.

Aztec, 5.5.2019 kl. 12:15

4 Smámynd: Hörður Þormar

Auðvitað á ekki að banna innflutning á bensín- og díselbílum, enda þarf þess ekki ef hætt verður að framleiða þá.

Hörður Þormar, 5.5.2019 kl. 15:34

5 Smámynd: Aztec

Hörður, það er rétt hjá þér, það á ekki að banna innflutning á benzín- og dieselbílum, en ég efast um að hætt verði að framleiða þá næstu aldirnar.

Aztec, 5.5.2019 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband