KALLA MENN ÞAÐ EKKI YFIR SIG AÐ VERA GRÝTTIR EÐA EITTHVAÐ ÞAÐAN AF VERRA EF ÞEIR GAGNRÝNA "HEILÖGU ÞRENNINGUNA"????

Fyrir nokkru síðan, skrifaði  Frosti Logason grein um "hjarðhegðun" landsmanna, þar nefndi hann sem dæmi að allt sem "heilaga þrenningin" (segði,gerði og kæmi með fyrirmæli um), bæri að taka sem heilögum sannleik og ef einhver væri svo ósvífinn að gagnrýna það á einhvern hátt mætti sá hinn sami eiga von á því að verða grýttur á almannafæri (en að sjálfsögðu yrði samkomubann virt) og þessi aðili ætti sér ekki viðreisnar von í samfélaginu.  Þetta virðist alveg vera að rætast, undanfarið hafa birst greinar, eftir nokkra aðila þar sem störf þessara aðila (Víðis Reynissonar, Þórólfs Guðasona og Öldu Möller) eru gagnrýnd, þetta fólk er mannlegt eins og við hin og líklega skíta þau líka í klósett og stundum hljóta þau að gera mistök eins og aðrir.  Í flestum fjölmiðlum, sem hafa birt þessar greinar, eru "athugasemdakerfi" og þar er ekki farið fögrum orðum um þessa aðila og eru sumar athugasemdirnar þess eðlis að ekki er nokkur leið að hafa þær eftir. FLESTAR ATHUGASEMDIRNAR GANGA ÚT Á ÞAÐ AÐ SÁ SEM SKRIFAR SÉ NÚ ENGINN SÉRFRÆÐINGUR Í SÓTTVARNAMÁLUM OG EIGI ÞVÍ EKKERT AÐ VERA AÐ TJÁ SIG UM ÞESSI MÁL.  EN ER SÁ SEM SKRIFAR ATHUGASEMDINA SÉRFRÆÐINGUR UM SÓTTVARNARMÁL OG Á HANN EITTHVAÐ AÐ VERA AÐ TJÁ SIG UM ÞESSI MÁL??????????


mbl.is Fyrsta skrefið ekki tekið fyrir 4. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband