KÖLD VATNSGUSA BEINT Í ANDLIT LANDSMANNA...........

Núna þegar tugir þúsunda landsmanna eru að missa vinnuna, aðrir taka á sig lækkað starfshlutfall og enn aðrir taka á sig LAUNALÆKKUN.  En ekki stjórnmálastéttin og æðstu embættismenn landsins, þeir skammta sér LAUNAHÆKKUN SEM ER AFTURVIRK TIL 1. JANÚAR.  Ég verð að viðurkenna það að ég hélt að þetta lið hefði einhvern snefil af sómakennd, en því miður þá verð ég að éta það ofan í mig.  Að þessu fólki skuli detta þetta í hug á þessum tímum, ber merki um svo mikla ósvífni og hroka gagnvart þjóðinni.  En þau eru vön því að allt verði vitlaust í nokkra daga og svo þegar kemur að kosningum verði allir búnir að gleyma þessu og kjósi sama viðbjóðinn yfir sig aftur.  Verður það kannski raunin í þetta skipti????????????


mbl.is Laun æðstu ráðamanna hækkuðu um áramótin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Já Jóhann, stjórnvöld missa ekki af því tækifæri að niðurlægja landsmenn þegar þeir hafa tækifæri til.!!!

Tómas Ibsen Halldórsson, 8.4.2020 kl. 14:20

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er misskilningur að um afturvirkni sé að ræða. Hækkunin átti að koma til framkvæmda 1. júlí í fyrra en vegna lífskjarasamninga var ákveðið að fresta henni til 1. janúar 2020. Þetta var allt saman ákveðið í fyrra og var meðal forsendna lífskjarasamninganna. Næsta hækkun hefði svo að óbreyttu átt að koma til framkvæmd 1. júlí 2020 en vegna Covid áhrifanna var nýlega samþykkt að fresta henni fram til 1. janúar 2021. Það eina nýja við fréttina er að úps, fjársýslan gleymdi að setja hækkun síðustu áramóta inn í tölvuna og er núna að leiðrétta það.

Það er gott að fólk hafi skoðun á launakjörum æðstu ráðamanna, en heppilegast er ef sú skoðun byggist á staðreyndum sem fyrirfinnast í raunveruleikanum.

Ein þeirra staðreynda sem fyrirfinnast í raunveruleikanum er að á meðan þyrlast upp ryk út af þessu, þá er ekki verið að setja þak á verðtrygginguna.

Guðmundur Ásgeirsson, 8.4.2020 kl. 14:54

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Við gerð lífskjarasamninga var gert ráð fyrir ákveðnu jafnvægi í efnahagsmálum þjóðarinnar. Nú bregður svo við að margir hafa misst vinnuna og sumir lækkað verulega í launum. Atvinnutryggingarsjóður kemur þarna að einhverju leiti til móts við þessa aðila, en enn er ekki útsíð með hvernig fara muni.

Fjöldi fyrirtækja og margir einyrkjar munu fara illilega út úr kreppunni sem að steðjar og eflaust mun fjöldi þeirra lenda í gjaldþroti. Ef stjórnvöld vilja láta taka sig alvarlega fresta þeir enn frekar eða jafnvel fella niður þessar hækkanir þar til tilefni gefst til annars.

Tómas Ibsen Halldórsson, 8.4.2020 kl. 15:42

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, ef þú lest fréttina sem ég blogga við, þá stendur þar að þetta sé afturvirkt til 1. janúar.  Kannski hafa Moggamenn eitthvað misskilið málið?????????

Jóhann Elíasson, 8.4.2020 kl. 16:08

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Tómas,  stjórnvöld virðast nota hvert tækifæri sem gefst til að niðurlægja landsmenn.........

Jóhann Elíasson, 8.4.2020 kl. 16:10

6 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Svín fór yfir Rín kom aftur svín. Þarf að segja eitthvað meir.

Sigurður I B Guðmundsson, 8.4.2020 kl. 19:45

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei ætli það Sigurður, ég held þetta sé alveg á hreinu..........

Jóhann Elíasson, 8.4.2020 kl. 20:51

8 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, ég hef margoft sagt að fólk er fífl!

Og það virðist vera bjánar og fífl víða í þjóðfélaginu¡

Góðar stundir.

Helgi Þór Gunnarsson, 9.4.2020 kl. 10:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband