Föstudagsgrín

Þennan fékk ég frá dyggum lesanda og kann ég honum bestu þakkir fyrir.

Gömul hjón, bæði á tíræðisaldri, fóru til læknis því þau voru orðin mjög gleymin.  Þau voru alveg viss um að læknirinn myndi eitthvað geta hjálpað þeim því þetta var orðið MJÖG mikið vandamál hjá þeim.    Þegar þau komu  til læknisins, sagði hann  að það væri nú lítið sem hann gæti gert en benti þeim á að það gæti verið ágætis ráð að skrifa niður það sem ætti að gera.  Með þetta þjóðráð fóru þau heim.  Nokkrum kvöldum seinna sátu  þau inni í stofu og horfðu á sjónvarpið og þá varð konunni að orði:

  • „Mig langar svo mikið í ís, nennirðu að fara fram í eldhús og sækja ís handa mér?“
  • „Já já“ sagði maðurinn og stóð upp.
  • „Er ekki betra að skrifa þetta niður“ sagði konan.
  • „Nei nei“ sagði maðurinn „ég man þetta alveg“.
  • „Mig langar í jarðaber með ísnum“ sagði konan þá. „Er ekki betra að skrifa þetta niður“? sagði konan þá.
  • „Nei nei“ sagði maðurinn þá, „ís og jarðaber, ég man þetta alveg“.
  • „Mig langar líka í rjóma með“ sagði hún þá. „Ertu alveg viss um að það sé ekki betra að skrifa þetta niður „?
  • „Nei, nei blessuð vertu ég man þetta alveg, ís, jarðaber og rjóma skárra væri það nú“. Sagði hann og fór fram í eldhús.

Eftir þó nokkurn tíma kom hann til baka úr eldhúsinu með EGG OG BEIKON á diski........  Þá sagði konan: „HVAR ER RISTAÐA BRAUÐIГ???????????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Frú Jórunn var gildvaxin kona, feit og mikil fyrir fetann. Hún hafði það stundum til siðs að kaupa tvo aðgöngumiða fyrir sig eina, þegar hún fór á skemmtanir eða leikhús, til þess að hafa rýrma um sig. Á skemmtun einni afhenti hún þjóninum tvo aðgöngumiða. Þjóninn spyr hana, hver eigi að sitja í öðru sætinu. Án þess að það komi yður við, ætla ég að sitja í þeim báðum, svaraði Jórunn önug. Eins og yður þóknast, frú, svaraði þjóninn, en annars eru þessi sæti sitt hvoru megin við gangveginn!

Sigurður I B Guðmundsson, 7.8.2020 kl. 10:40

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ha, ha, góður þessi.......

Jóhann Elíasson, 7.8.2020 kl. 11:22

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Mikil fyrir fetann: Fyrirferðamikill, vera mikill fyrir sér, mikillátur. 

Sigurður I B Guðmundsson, 7.8.2020 kl. 11:59

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Sigurður.  Í sveitinni í gamla daga fékk ég mikinn fróðleik yfir mig í gömlum máltækjum og sem betur fer hefur mikið af því varðveist í gegnum tíðina.  En ég verð að viðurkenna að ég þurfti að "grafa" nokkuð djúpt eftir þessu en það var þarna.........

Jóhann Elíasson, 7.8.2020 kl. 12:36

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég fór í "íslensk orðabók" til að vera alveg viss.

Sigurður I B Guðmundsson, 7.8.2020 kl. 16:08

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Enn einu sinni kærar þakkir Sigurður, það var ekki verra að fá svona nákvæma útskýringu........

Jóhann Elíasson, 7.8.2020 kl. 16:31

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Góður þessi nafni og ekki er hann verri hjá þér Sigurður ;>)

Með kveðju frá Montgomery Texas

Jóhann Kristinsson, 7.8.2020 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband