NÁKVÆMLEGA SÖMU RÖKIN OG VORU NOTUÐ VIÐ ALLA AÐRA KVÓTASETNINGU...

Þetta er nokkuð sem er kallað ENDURVINNSLA.  Er það virkilega svo að að "kvótasinnar hafi ekki lært eða tileinkað sér nýja "frasa" í þau tæp 40 ár sem kvótakerfið hefur verið í "gagnið".  Fljótt á litið get ég ekki séð að það sé neitt nýtt í þessu frumvarpi frá því að kvótakerfið var sett á 1983.  Hafa stjórnmálamennirnir ekkert lært á þessum tæpu 40 árum eða á enn að halda áfram með þá lygi að kvótakerfið sé besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi????????


mbl.is Telur mikla kosti við kvótasetningu grásleppuveiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það er LÍÚ (núna SFS) sem öllu stjórna og ráða. Það hefur ekkert breyst samanber Samherja málið. 

Sigurður I B Guðmundsson, 14.12.2020 kl. 15:48

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Enn ein aðförinn að auðlind sem skal setja í

örfáar hendur. Græðgin eru engin takmörk sett.

Sigurður Kristján Hjaltested, 14.12.2020 kl. 16:07

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það var svo sem ekki við öðru að búast af þessum "Sjávarútvegsráðherra".  Er ekki Þorsteinn Már hans yfirmaður?  Hvað ætli sé að frétta af framgangi "Samherjamálsins", mér skilst að málið sé í góðum gangi í Namibíu??????

Jóhann Elíasson, 14.12.2020 kl. 17:28

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Nú skal gerð aðför að veiðum á smábátum upp í landsteinum. Sömu innihaldslausu frasarnir notaðir. Talar um að auka skilvirkni og bæta umgengni, í kerfi sem hefur valdið eyðingu fiskistofna og kallað á brottkast.

Magnús Sigurðsson, 14.12.2020 kl. 18:04

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nákvæmlega, Magnús.  Ekki bara eyðilagt fiskistofnana, heldur líka eyðilagt sjávarbyggðir landsins og stuðlað að "landeyðingu".....

Jóhann Elíasson, 14.12.2020 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband