ENDALAUST ER HÆGT AÐ FINNA EINHVERJA SEM ERU TILBÚNIR TIL AÐ KOMA MEÐ "FALSKAR KENNINGAR" UM ÁGÆTI KVÓTAKERFISINS OG JAFNVEL AÐ SKREYTA ÞESSAR "KENNINGAR, ÁGISKANIR OG FROÐUSNAKK" MEÐ FRÆÐIMENNSKU.....

Og helst dettur manni í hug að sá sem skrifar þessa grein, hafi verið orðinn eitthvað valtur á stólnum og séð með þessum skrifum sínum leið til þess að styrkja starf sitt (getur verið að uppsagnir séu yfirvofandi í Hádegismóunum?).  Það er stórmerkilegt að lesa þessa grein, því hún á víst að fjalla um það hversu Íslenska kvótakerfið er "SVEIGJANLEGT" en svo les maður greinina og það er ekki einn einasti stafur um það hvað það er sem geri kvótakerfið svona "SVEIGJANLEGT".  Ég hef náttúrulega grun það hvað það er sem á að gera kvótakerfið svona sveigjanlegt en það er framsalið, sem kvótagreifarnir hafa verið að verja með klóm og kjafti allt frá því að það var heimilað, að mig minnir 1993 og gengið svona upp og niður hjá þeim blessuðum, aðallega niður.  En því miður virðast ýmsir sjá sér hag í að verja þetta skrímsli sem kvótakerfið er, enda kannski ekkert einfalt að vera að koma úr dýru námi og einhvern vegin verður fólk að "tryggja framtíð sína" svo þeir geti tryggt framæri sitt og sinna og oft verða menn/konur að tala og skrifa þvert á hug sinn........


mbl.is Sveigjanleiki kvótakerfisins mikill kostur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

LÍÚ lifir enn góðu lífi!!

Sigurður I B Guðmundsson, 2.1.2021 kl. 18:20

2 identicon

Höfundur greinarinnar gerir greinilega ráð fyrir að þú notir heilasellurnar þegar kemur að sveigjanleika kerfisins.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 2.1.2021 kl. 19:47

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sigurður, satt segir þú.............

Jóhann Elíasson, 2.1.2021 kl. 21:28

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jósef Smári, en greinarhöfundurinn hefur ekki gert ráð fyrir því að hann sjálfur þyrfti að nota heilasellurnar þegar hann sjálfur skrifaði greinina.....

Jóhann Elíasson, 2.1.2021 kl. 21:30

5 identicon

Allur fiskur á markað, þar sem útgerð er svo úthluað aflaheimildum gegn gjaldi til ríkisins, og bátar verði með aflaþak eftir veiðiflokkum.

Krókaveiðum verði umbunað vegna umhverfissjónamiða með veiðistuðli. Eru lang umhverfisvænstu verkfæri til veiða auðlindarinar. 

Þetta verður ekki frammseljanlegt og ef eitthvað næst ekki að veiða, þá verður það eftir ár hvert. 

Þetta er vel frammkvæmanlegt og tímabært að gera sem fyrst áður en auðlind landsmanna verður skuldsettari en hún er nú þegar orðinn. betra seint en að fá skulda sjóhengjuna í fangið ofaní allt annað sem á okkur hefur dunið síðustu ár.

Magnús Guðbergsson (IP-tala skráð) 4.1.2021 kl. 02:55

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Komdu sæll Magnús og gleðilegt ár og bestu þakkir fyrir góðar athugasemdir.  Já þetta með frjálsar handfæraveiðar er meira en vel framkvæmanlegt heldur er þetta einfalt í framkvæmd , atvinnuskapandi og yrði mikil innspýting fyrir samfélagið og atvinnulífið í hinum dreifðu byggðum landsins.  En þetta er spurning um vilja stjórnvalda og getu til að gera breytingar á útþvældu og snarvitlausu fiskveiðistjórnunarkerfi. sem er í andstöðu við stóran hluta þjóðarinnar en er stjórnað af örfáum eiginhagsmunaseggjum, sem eingöngu bera eigin ha fyrir brjósti en hugsa ekkert um hag þjóðarinnar.....

Jóhann Elíasson, 4.1.2021 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband