ER MEIRIHLUTINN Í REYKJAVÍK Í EINHVERRI "FIMMAURABRANDARAKEPPNI"??

Þrátt fyrir eldgosið í Geldingadölum heldur Dagur B. áfram að tala um INNANLANDSFLUGVÖLL Í HVASSAHRAUNI og bætir frekar í en hitt og það lá við að dytti af mér andlitið þegar ég las "gáfulegan" laughing frown cool pistil Pawels Bartoszeks (vonandi hef ég stafsett nafnið rétt ef svo er ekki biðst ég afsökunar) í Morgunblaðinu í morgun á bls 6.  En þar rekur hann nokkuð spaugilega hvernig eigi að "leysa" vanda Gæslunnar með því að flytja LHG í Hvassahraun. Svo segir hann "Það er afstaða Reykjavíkur að flugvöllurinn eigi að víkja úr Vatnsmýrinni".  Ég veit ekki til að Reykvíkingar hafi nokkurn tímann lýst því yfir að Reykjavíkurflugvöllur eigi að fara eitt né neitt HELDUR HEFUR MEIRIHLUTINN Í STJÓRN REYKJAVÍKURBORGAR TEKIÐ ÞESSA ÁKVÖRÐUN ÁN SAMRÁÐS VIÐ BORGARBÚA.  Ég tel að meirihlutinn í borgarstjórn hafi ekki heimild til að taka svo stóra ákvörðun án íbúakosningar, sama á við um "borgarlínu  og aðrar mjög stórar framkvæmdir................


mbl.is Sjálfstæð ákvörðun borgarinnar að úthýsa Gæslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Meirihlutinn í stjórn Reykjavíkur tók þessa ákvörðun fullkomlega án samráðs við borgarbúa.

Það var boðað til fáheyrðrar íbúakosningar upp úr síðustu aldamótum þar sem kosið var um tilveru Reykjavíkurflugvallar.

Þegar kosningin var boðuð var sérstaklega tekið fram að visst hlutfall kjósenda þyrfti að mæta til að tekið yrði mark á niðurstöðunni.

Það var ljóst fyrir kosningadaginn að ekki myndu nánda nærri nógu margir mæta kjörstað til að uppfylla þátttöku hlutfallið.

Fólk sá einfaldlega ekki ástæðu til að taka þátt í þessum lýðræðislega fíflagangi, þ.m.t. ég sem var Reykvíkingur á þessum tíma.

Kosningaþátttaka var langt undir öllu sem eðlilegt getur talist.

Þar að auki er Reykjavíkurflugvöllur ekkert einkamál "meirihlutans í Reykjavík".

Þeir sem með landstjórnina hafa farið hafa leikið nákvæmlega sama hráskinnaleikinn og meirihlutinn í Reykjavík.

Pólitíkusar hafa verið fullkomlega umboðslausir hvað Reykjavíkurflugvöll varðar alla þessa öld.

Og gerðir þeirra sýnir best hvernig fjármálöflin kaupa upp lýðræðiskjörna fulltrúa.

Ps. annars hefði ég skotið á að það væri einfalt v í Pavel.

Magnús Sigurðsson, 21.5.2021 kl. 19:56

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Allt þetta sem þú sagðir er satt og rétt en ég velti fyrir mér hvort ekki séu nein takmörk á því hvað "meirihlutinn" hefur "leyfi" til að gera?  Ég tékkaði á Morgunblaðinu áður en ég skrifaði þetta og þar voru þeir með tvöfalt v í Pawel.

Jóhann Elíasson, 21.5.2021 kl. 20:05

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Tek undir allt sem Magnús Sigurðsson segir.

En væri ekki bara allra best, fyrir alþjóð, að flytja þennan meirhluta/minnihluta

í Hvassahraun og málið er dautt.?

Þar getur þessi getulausi meirihluti/minnihluti, yljað sér við glóandi hraun og grillað

ókeypis í boði náttúru.

Hvassahraun 101 væri frábær lausn fyrir Reykvíkinga..wink

Sigurður Kristján Hjaltested, 21.5.2021 kl. 22:00

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Viðreisn fékk 4812 atkvæði semsagt 2 borgarfulltrúa, og þetta er ekki meirihluti enda ekki með meirihluta atkvæða á bak við sig.

Þetta fólk hefur ekkert umboð til að loka Reykjavíkurflugvelli, ríkið mun ef það þarf skerast í leikinn og taka skipulagsvaldið af Reykjavikurbog.

Held reyndar að það sé kominn pirringur í borgarfulltrúa Viðreisnar enda ekki gott að vera bara hækja.

Óðinn Þórisson, 21.5.2021 kl. 22:00

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þá er nú föstudagsgrínið betra.

Sigurður I B Guðmundsson, 22.5.2021 kl. 09:30

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessir "fimmaurabrandarar" Reykjavíkurmeirihlutans standsat náttúrulega föstudagsgríninu ekki snúning og í rauninni ekki hægt að nefna þetta tvennt í sömu andrá.......wink

Jóhann Elíasson, 22.5.2021 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband