VERÐUR EKKI AÐ FARA Í TILFÆRSLUR Í REYKJAVÍK - ÞARF EKKI AÐ VERA SVOKALLAÐUR "FLÉTTULISTI"??????

Eða gildir JAFNRÉTTIÐ ekki í báðar áttir?  Ég fæ ekki betur séð en að það "þurfi", til að gæta jafnræðis, að færa Brynjar Níelsson i 4. sætið upp fyrir Diljá Mist Einarsdóttur og svo Birgi Ármannsson upp fyrir Hildi Sverrisdóttur.  Listinn liti þá þannig út:

  1. Guðlaugur Þór Þórðarson
  2. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
  3. Brynjar Níelsson
  4. Diljá Mist Einarsdóttir
  5. Birgir Ármannsson
  6. Hildur Sverrisdóttir
  7. Kjartan Magnússon
  8. Sigríður Á. Andersen

Og ESB maðurinn Friðjón R. Friðjónsson vermir þá níunda sætið.  Það eru víst fordæmi fyrir því hjá Sjálfstæðisflokknum að "átt" hafi verið við niðurstöður prófkjörs til að GÆTA JAFNRÉTTIS EN NÚNA ÞEGAR NIÐURSTAÐAN ER ÞANNIG AРÚRSLIT PRÓFKJÖRSINS ER KÖRLUM Í ÓHAG, ÞÁ ER KANNSKI EKKI ÁSTÆÐA TIL BREYTINGA Á LISTANUM?????


mbl.is Guðlaugur Þór sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að flagga ESB sinnum í Reykjavík?

Magnús Sigurðsson, 6.6.2021 kl. 08:52

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sjálfstæðisflokkurinn er núna með fimm þingmenn í Reykjavík og í fimm efstu sætunum í prófkjörinu eru þrjár konur og tveir karlar en með fléttulista yrðu konurnar tvær og karlarnir þrír. cool

Og í næstu þremur sætum í prófkjörinu eru karlar, ef flokkurinn fengi fleiri en fimm þingmenn í Reykjavík, sem er harla ólíklegt samkvæmt skoðanakönnunum.

Núna eru 75% þingmanna Sjálfstæðisflokksins karlar og þrjár af fjórum þingkonum flokksins eru lögfræðingar.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir og Hildur Sverrisdóttir eru allar lögfræðingar og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, sem varð í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, er einnig lögfræðingur, sem endurspeglar þjóðfélagið að sjálfsögðu vel. cool

Þorsteinn Briem, 6.6.2021 kl. 09:40

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

INNLIMUNARSINNINN kemst sem betur fer ekki inn á þing, sma hverig allt fer Magnús...........

Jóhann Elíasson, 6.6.2021 kl. 10:19

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þorsteinn Briem, ég er aðallega að benda á að þegar hallaði á konur í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu Alþingiskosningar þá var mikil nauðsyn að hafa "fléttulista" en verður sama nauðsynin á því þegar hallar á karla?  Það er orðið "þröngt" á atvinnumarkaðnum fyrirlögfræðinga og þá sjá þeir þann kostinn vænstan fyrir sig að reyna að komast á Alþingi....

Jóhann Elíasson, 6.6.2021 kl. 10:26

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Að sjálfsögðu á að gera eins og seinast. En það er bara rétt sem þú segir Jóhann, alltaf þegar hallar

á karla, þá eiga þeir að halda kjafti. Skyldi BB þora að gera eitthvað.?

Sigurður Kristján Hjaltested, 6.6.2021 kl. 12:16

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég sé bara ekkert annað í  stöðunni Sigurður Kristján Hjaltested.  En kannski er útkoman í prófkjörinu FLOKKSEIGENDAKLÍKUNNI að skapi í þetta skipti?????????

Jóhann Elíasson, 6.6.2021 kl. 13:34

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Einfaldasta lausnin blasir við. Skráning á hvorugkyni í þjóðskrá hefur verið heimiluð. Þá þarf ekkert að breyta röð fólks á listanum til að tryggja kynjahlutleysi. :)

Guðmundur Ásgeirsson, 6.6.2021 kl. 14:14

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér finnst síður en svo vera lausn að toppa eina vitleysu með annarri enn meiri, Guðmundur.........undecided

Jóhann Elíasson, 6.6.2021 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband