SKILJANLEGA - EN VIÐ ÍSLENDINGAR HÖFUM EKKERT VAL......

Við sitjum uppi með hana hvort sem okkur líkar betur eða verr.  Hún er þekkt fyrir ofstopa og óheflaða framkomu og að nota efsta stig "óprenthæfra" lýsingarorða og oft á tíðum kemur hún með fullyrðingar, sem hún getur ekki staðið við.  Það væri ekki úr vegi að þessi skýrsla þingkonunnar yrði gerð opinber, það getur ekki verið að þessar aðgerðir Rússa séu að ástæðulausu....


mbl.is Vill banna Þórhildi Sunnu að koma til Rússlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eins og aðrar skýrslur Evrópuþingsráðsins er þessi tiltekna skýrsla opinber og búin að vera það í mánuð, hér er hún gjörðu svo vel: The situation of Crimean Tatars

Hvaða "aðgerðir" Rússa áttu við? Hingað til hafa þetta bara verið stórkarlalegar yfirlýsingar frá þeim en engar beinar aðgerðir.

Rússar geta svo sem alltaf sagt sig úr Evrópuráðinu ef þeim mislíkar það sem þar fer fram...

Guðmundur Ásgeirsson, 3.7.2021 kl. 17:28

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Guðmundur.  Hún gefur ekkert eftir í stóryrðum og yfirlýsingum frekar en fyrri daginn og efir lesturinn skil ég Rússana mætavel að vilja ekki fá hana til landsins.......

Jóhann Elíasson, 3.7.2021 kl. 19:58

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég hef ekki lesið þessa skýrslu svo ég get lítið tjáð mig um hana. Það eina sem ég veit er að hernámið á Krímskaga var grímulaust brot á alþjóðalögum (rétt eins og innrásin í Írak).

Guðmundur Ásgeirsson, 3.7.2021 kl. 20:07

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ætli það séu ekki nokkur fleiri brotin á alþjóðalögum, það er bara ekki sama hver fremur þessi brot, viðbrögð heimsbyggðarinnar eru mismunandi eftir því hver fremur brotið......

Jóhann Elíasson, 3.7.2021 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband