FLOKKAFLAKKARI = TÆKIFÆRISSINNI............

Það hlýtur að vera rannsóknarefni, hversu óstöðug ein manneskja getur verið pólitískt.  Í mínu ungdæmi var talað um svona "flokkaflakkara" á frekar niðrandi hátt (þá voru menn nokkuð stabílir og það þótti merki um óstöðugleika að elta uppi eina róttæka skoðun eftir aðra).  En núna er þessu fólki "hampað" og það  þykir ekkert tiltökumál að vera Sjálfstæðismaður í dag og Sósíalisti á morgun..............


mbl.is Birgitta gengin til liðs við Sósíalistaflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hvort heldur þú að þetta fólk sé að hugsa um hagsmuni landsins eða sjálft sig?!

Sigurður I B Guðmundsson, 2.8.2021 kl. 09:28

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Mæli með að fólk skoði bloggið hans Jóhannesar Ragnarssonr en það fjallar á mjög frumlegan hátt um þetta efni (á hans hátt). 

Sigurður I B Guðmundsson, 2.8.2021 kl. 09:32

3 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Er þetta fína orðið yfir flokkshóru ? Það er morgunljóst að ALLIR sem sitja á Alþingi nú eru að hugsa um eigin rass eingöngu og EKKERT annað. Geturðu kannski bent á einhvern þar sem í raun er með hagsmuni almennings í fyrirrúmi ? Nóg er nú vinstri slagsíðan á Íslandi þó Marxistarnir verði ekki líka áhrifamiklir.

Örn Gunnlaugsson, 2.8.2021 kl. 09:50

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er nokkuð klár á því að EIGINHAGSMUNIRNIR eru í forgangi hjá þessu liði Sigurður.............

Jóhann Elíasson, 2.8.2021 kl. 11:59

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Jóhannes Ragnarson á engan sinn líkan........

Jóhann Elíasson, 2.8.2021 kl. 12:03

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Örn, í sveitinni þar sem ég var, þar voru þeir sem flökkuðu svona á milli flokka kallaðir "pólitískar hórur".  Ég veit ekki um neinn á Alþingi, sem er með hagsmuni almennings í fyrirrúmi.  Því miður virðist þetta "bakborðsslagsíðulið" vera það ungt að það gerir sér ekki nokkra grein fyrir ÞVÍ HVERSU MIKIÐ BÖL KOMMÚNISMINN VAR OG MEÐ LÝÐSKRUMI OG LYGUM ER BÚIÐ AÐ KOMA SÓSÍALISMANUM INN UNDIR HJÁ ÞESSU "BAKBORÐSLAGSÍÐULIÐI"...................

Jóhann Elíasson, 2.8.2021 kl. 13:33

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Birgitta hefur alltaf verið sósíalisti. Nú þegar slíkur flokkur hefur komið fram á sjónarsviðið kemur ekkert á óvart að hún gangi í hann. Það er engin frétt.

Guðmundur Ásgeirsson, 2.8.2021 kl. 23:42

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, það er nú ekki eins og Sósíalistaflokkurinn hafi verið stofnaður í gær og samkvæmt þessu þá hefur hún verið ansi lengi að átta sig á því að hún væri Sósíalisti og ef að "fattarinnn" er svona slakur hjá henni þá skýrir það kannski margt sem hún hefur sagt og gert á liðnum árrum........

Jóhann Elíasson, 3.8.2021 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband