SVIK Í UPPSIGLINGU........

Með þessu ætlar Einar Þorsteinsson að SVÍKJA það það sem hann lagði áherslu á í kosningabaráttunni að hann stæði fyrir breytingum.  Hann er frekar að standa fyrir pólitísku sjálfsmorði.  Hann fær kannski að verða borgarstjóri svona að nafninu til en hann kemur ekki til með að ráða neinu ...........


mbl.is Framsókn býður bandalaginu til viðræðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einar er einungis þekkt andlit af RÚV.

Þannig var honum spilað fram.

af Samfylkingar RÚV.

Nú verður hann Einar Gnarr, borgarstjóri.

Flokkur fyrri gnarrista Dags og RÚV

hrundi reyndar, að einu kjörtímabili liðnu.

En meðan Sjálfstæðisflokkurinn getur ekkert boðið annað fram en Samfylkingar Hildi, þá mun Einar geta skákað í því skjóli, að ekki sópaði sú að sér atkvæðunum.  Og það má Einar Gnarr eiga, að hann sagði réttilega að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að líta í eigin barm hvað fylgisleysið varðar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.5.2022 kl. 10:58

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Jóhann.

Ég tek undir hvert orð ykkar Símonar Péturs. Mér sýnist á öllu að Framsókn með Einar Gnarr hafi farið fram í þeim tilgangi að viðhalda bullinu sem verið hefur í Reykjavík nú í mörg kjörtímabil. Þeir sem greiddu Framsókn atkvæði sín í þeirri trú að breytinga væri þörf munu nú sjá atkvæði sín hafa farið til ónýtis.

En eins og ég hef sagt áður þá hefur Bjarni Ben. grafið undan Sjálfstæðisflokknum og skortur á forustu flokksins í Reykjavík hefur einnig gert það að verkum að atkvæði flýðu yfir á Framsókn. Ég verð einnig að segja að Reykjavík skortir fulltrúa frá Miðflokknum og eins vantar fleiri fulltrúa hjá Flokki fólksins.

Meðan kratar eru í öllum öðrum flokkum, þar með talið Sjálfstæðisflokknum, þá er ekki von á góðu.

Tómas Ibsen Halldórsson, 24.5.2022 kl. 11:30

3 Smámynd: Helgi Rúnar Jónsson

Þetta eru ekkert svik..það er bara ekkert hægt að vinna með SjálfstæðisFLokknum svo gjörspilltur sem hann er..Samfylking, Viðreisn og Píratar eru óspilltri flokkar sem hægt er að treysta á..Framsókn er náttúrulega eins og þeir eru...tækifærissinnar.

Helgi Rúnar Jónsson, 24.5.2022 kl. 11:41

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er alveg sammála þér Símon Pétur frá Hákoti, nema því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki GETAÐ boðið uppá annað en Samfylkingar Hildi, þeim stóð til boða mjög frambærileg manneskja en þeir völdu  Hildi og það  varð þeim að falli.......

Jóhann Elíasson, 24.5.2022 kl. 12:05

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Tek undir hvert orð hjá þér Tómas og ég vil bara bæta því við að Dagur B, er örugglega skellihlæjandi núna, yfir því hvernig hann hefur getað blekkt alla og tekið í ra...... með KLÆKJUM.....

Jóhann Elíasson, 24.5.2022 kl. 12:09

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Helgi Rúnar, þú verður nú að fara að leita þér hjálpar ef þú heldur virkilega að Samfylking, Píratar og Viðreisn séu ÓSPILLTIR flokkar.... cool

Jóhann Elíasson, 24.5.2022 kl. 12:13

7 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Faðir minn sem var eitilharður Sjálfstæðismaður og var t.d. gjaldkeri hjá Heimdalli sagði fyrir rúmri hálfri öld að kosturinn við alþýðubandalagið væri að maður vissi alltaf hvar maður hefði þá en framsókn nei þú getur aldrei vitað hvar þú hefur þá. 

Sigurður I B Guðmundsson, 24.5.2022 kl. 12:53

8 identicon

Kýs aldrie aftur Framsókn !

Svikaflokkur ! Þetta er einsog að skipta um disk undir vondri köku !

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 24.5.2022 kl. 13:30

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Faðir þinn hefur sko alveg vitað hvað klukkan sló, Sigurður..... 

Jóhann Elíasson, 24.5.2022 kl. 14:38

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú ert örugglega ekki einn um þetta Birgir og margir sem upplifa sig svikna.......

Jóhann Elíasson, 24.5.2022 kl. 14:40

11 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Fylgið sem Framsókn fékk er óákveðið og laust fylgi. Ef það fólk verður ekki ánægt með Framsókn kýs það Miðflokkinn, Flokk fólksins eða aðra flokka næst. Þeir eru bara sjálfum sér verstir framsóknarmennirnir ef þeir tala fyrir breytingum fyrir kosningar en ganga svo í lið með Degi og hans flokkum.

Ingólfur Sigurðsson, 24.5.2022 kl. 14:55

12 identicon

Já, Jóhann, Sjálfstæðisflokkurinn gat svo sem valið sér annan oddvita, en það náðist ekki.  Hvers vegna tókst það ekki?  Ég held að öllum sé það augljóst:  Engeyinga flokkseigendafélagið vildi Samfylkingar Hildi sem oddvita, og það réði úrslitum.  Engeyingar eru að rústa Sjálfstæðisflokknum.  Og það virðist annað hvort vera einbeittur vilji þeirra, eða stærilátur hroki, nema bæði sé.  Þjóðlegir íhaldsmenn eru flokkslausir, flokki þeirra, Sjálfstæðisflokknum, hefur verið stolið frá þeim, en þjófnaður er einmitt það sem Engeyjar jarlar stunda helst.  Æ fleiri átta sig á þessu, enda hrynur fylgið.

Þessi forðum glæsti flokkur er nú kominn niður í púrtara prósentu, en var áður sem eðal konjakk.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 24.5.2022 kl. 15:10

13 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er alveg rétt hjá þér Ingólfur, mig bara grunaði ekki að minni i kjósenda væri svona slappt Framsóknarflokkurinn hefur sýnt það trekk í trekk að honum er ekki treystandi og hvað kom til að fólk treysti honum frekar núna?????

Jóhann Elíasson, 24.5.2022 kl. 15:42

14 Smámynd: Jóhann Elíasson

Símon Pétur frá Hákoti, þetta er allt hárrétt hjá þér og ég hef ekki neinu við þetta að bæta enda ekki hægt að mótmæla neinu af því sem þú skrifar núna......

Jóhann Elíasson, 24.5.2022 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband