ÞRÆLSLUNDIN ER AÐ DREPA OKKUR ÍSLENDINGA.........

Í fyrradag spjallaði ég við kunningja minn í Flórída í Bandaríkjunum.  Eins og gefur að skilja var um margt að spjalla og meðal annars var bensínverðið til umræðu.  Það fannst mér nokkuð merkilegt þegar hann sagði mér frá því að GALLON af bensíni var þá komið í $ 4,30 sem var á gengi dagsins í gær kr. 555,17 en það eru 3,7 lítrar í einu galloni, sem þýðir að 1 lítri af bensíni kostar kr. 150.05 í Flórída í Banaríkjunum.  Þar er allt komið á hliðina og ef fylkistjórinn grípur ekki inn í með aðgerðir er hann í mjög slæmum málum (ekki nefndi hann hvað yrði gert og spurði ég hann ekki nánar útí það).  Hann sagði mér einnig að það  væri mikill þrýstingur á Joe Biden að fara út í mikla olíuframleiðslu til þess að lækka olíuverðið en hann þyrði því ekki vegna "UMHVERFIS-AYJATOLLANNA" sem hann er skíthræddur við og eru á bakinu á honum.  En hér er bensínlítrinn kominn í 340 krónu og enginn segir neitt.  Og svo er alveg merkilegt að það skuli ekki vera neinar BIRGÐIR af bensíni í landinu þegar heimsmarkaðsverðið hækkar en þegar það lækkar þá eru allt fullt af olíu og bensíni???????????


mbl.is Bensínverðið í hæstu hæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Lengi má manninn reyna.

Sigurður I B Guðmundsson, 11.6.2022 kl. 14:26

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvað skyldi bensínlítrinn þurfa að fara í til þess að menn fái nóg??????????

Jóhann Elíasson, 11.6.2022 kl. 14:48

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Verður þrælslundin ekki enn sú sama þegar Strætó verður yfirfullur af fólki í og úr vinnu ??? þá verður kátt í Ráðhúsi Reykjavíkur. Bjarni Ben verður ánægður fram að því þar sem vaskurinn af bensíninu mun auka getu hans til að spreða í óþurftar dekur aðgerðir.

Tómas Ibsen Halldórsson, 11.6.2022 kl. 21:14

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er bara alveg á hreinu að ef tekst að koma öllum í strætó og allir hætta að nota bílinn þá hrynur þjóðfélagsgerðin vaskurinn vegna neyslu landsmanna verður frekar lítill og allar líkur á að Bjarni og fólkið í "elítunni" þurfi að fara að alvöruvinnu, með öðrum orðum þá er ansi hætt við að heimsmynd Davos-manna verði önnur en reiknað var með.......

Jóhann Elíasson, 11.6.2022 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband