HVAÐ ER AÐ FRÉTTA AF SAMHERJAMÁLINU???????

Það virðist vera að það sem frekar lítið að gerast í "rannsókn" þessa máls hér á landi en það virðist allt á fullu í þessu í Namibíu.  Samkvæmt frétt í FRÉTTBLAÐINU á blaðsíðu tvö í dag, þá komu Namibískir embættismenn til fundar við Brynjar Níelsson, aðstoðarmann Dómsmálaráðherra þann sjöunda júní síðastliðinn, en ekki fékkst uppgefið hvort um opinberan fund var að ræða eða hvað var rætt.  Og svo til árétta það enn betur að það standi hreinlega til að "SVÆFA" þetta þetta mál hér á landi, þá var grein á akureyri.net, þar sem Þorsteinn Már Baldvinsson lýsir því einfaldlega yfir að Samherji eigi einfaldlega ENGA AÐILD að þessu máli HELDUR EIGI Í HLUT DÓTTURFÉLAG SAMHERJA.  Síðan hvenær er það að móðurfélag ber ekki ábyrgð á dótturfyrirtæki?  Svo lýgur hann því til að enginn starfsmaður Samherja hafi verið ákærður.  Og þetta bull gleypa Akureyringar alveg hrátt án þess að skola því niður með einu eða neinu því ef þeir gera það ekki geta þeir bara flutt af svæðinu....... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Skúffurnar taka lengi við, svo er bara að passa upp á að tæma úr þeim verðmætin reglulega.

Magnús Sigurðsson, 2.8.2022 kl. 13:42

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Magnús og svo virðist vera að lengi sé hægt að hækka stólana með því að stinga undir þá málum........... undecided

Jóhann Elíasson, 2.8.2022 kl. 13:53

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Eg hef sagt það í gegnum árin: Mikill er máttur LíÚ (núna SFS) Það hefur ekkert breyst og skiptir þá engu máli hverjir af fjórflokkunum stjórna.

Sigurður I B Guðmundsson, 2.8.2022 kl. 16:20

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er örugglega rétt hjá þér Sigurður.  Þetta mál verður "SVÆFT" í rólegheitum, það versta er að menn eru orðnir svo öruggir með að þeir komist upp með það að þeir fara ekkert leynt með það hvað er verið að gera...... undecided

Jóhann Elíasson, 2.8.2022 kl. 17:05

5 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það væru nú hægari heimatökin að rannsaka morðtilraunina sem helstu heimildarmenn þessa Namibíumáls neita að veita lögreglunni upplýsingar um

Fær Páll skipstjóri réttlæti? - pallvil.blog.is

Grímur Kjartansson, 2.8.2022 kl. 18:28

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Grímur, þetta er alveg sitthvort málið, nú erum við að fjalla um MÚTUMÁLIÐ.  En ég tek alveg undir það að hitt málið er alveg grafalvarlegt og auðvitað þarf að upplýsa það sem allra fyrst......

Jóhann Elíasson, 2.8.2022 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband