EKKI BARA ÍSLENDINGAR SEM ÞURFA AÐ BERJAST GEGN "INNLIMUNARSINNUM" OG ÞEIM SEM VILJA FÓRNA FULLVELDINU...

Í gærkvöldi horfði ég á þátt í Norska sjónvarpinu (NRK), sem heitir DEBATTEN og er umræðuþáttur svipaður og "Silfrið" hér á landi, þarna var aðild að ESB til umræðu og upptaka evru.  Erna Solberg, formaður Højre var þarna fyrir INNLIMUNARSINA og svei mér þá hún gaf formanni Viðreisnar ekkert eftir í málflutningi sínum (eins og allir vita þá opnar formaur Viðreisnar ekki munninn á þess að koma evrunni og aðild að ESB að).  En það sem kom mér mest á óvart var það að INNLIMUNARSINNAR á Íslandi og Noregi, virðast vera búnir að SAMRÆMA "aðgerðir" sína til að LOKKA menn til fylgi við  aðild landanna að ESB, til dæmis var Ernu Solberg tíðrætt um hversu DÝR Norska krónan væri fyrir Norðmenn (nákvæmlega það sama og Íslenskir INNLIMUNARSINNAR eru búnir að "jarma" um árum saman) og voru þetta helstu rökin fyrir því að Norðmenn ættu að taka upp evru.  En væri ekki ráð að skoða aðeins hver skilyrðin fyrir upptöku evru eru?

  • FYRSTA SKILYRÐIÐ ER AÐILD AÐ ESB.
  • GENGIÐ ÞARF AÐ HAFA VERIÐ STÖÐUGT Í ÞRJÚ ÁR.
  • VEXTIR Á LANDINU ÞURFA AÐ HAFA VERIÐ UNDIR 4,5% Í ÞRJÚ ÁR.
  • VERÐBÓLGA ÞARF AÐ VERA UNDIR 4,5% Í MINNST ÞRJÚ ÁR.

AÐ ÞESSUM SKILYRÐUM UPPFYLLTUM ER BARA EKKI NOKKUR ÁSTÆÐA TIL ÞESS AÐ TAKA UPP EVRU, HVORKI Á ÍSLANDI EÐA NOREGI.  Svo er önnur spurning sem hlýtur að koma upp hjá mönnum; HALDA INNLIMUNARSINNAR AÐ EVRAN VERÐI ÁN KOSTNAÐAR EF HÚN YRÐI TEKIN UPP???????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Góður pistill Jóhann. Hvað gerist núna þegar Fréttablaðið er komið á hausinn og Hringbraut, sjónvarpsstöð sem var ætlað það hlutverk að boða fagnaðarerindi ESB trúboðsins og Fréttablaðinu það sama? Ekki hefur Sigmundi Erni tekizt ætlunarverkið, og þetta hlýtur að teljast tap fyrir ESB fólkið.

Ég man þegar stefnubreyting varð á Fréttablaðinu fyrir nokkrum árum og það varð opinberlega málgagn ESB innlimunarsinna með ritstjórnargrein og mannabreytingum. Það virðist ekki hafa verið almenningi að skapi, miðað við þessi örlög, að Fréttablaðið og Hringbraut hætta starfsemi.

Hef enn minni trú á því að Evran verði tekin upp núna eða þjóðin fari í Evrópusambandið.

Ingólfur Sigurðsson, 31.3.2023 kl. 14:35

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlitið og góðð orð i minn garð.  Ég vona að þú reynist sannspár þarna Ingólfur.  Ég bara neita að trúa því að landsmenn skoði ekki þessi mál á gagnrýninn hátt.....

Jóhann Elíasson, 31.3.2023 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband